Arkitektúr og hönnun (yngri)

Fyrir krakka í 6. og 7. bekk grunnskóla

Kl. 11:45 - 13:15 á laugardögum

- Hefur þú gaman af því að hanna hús, raða til húsgögnum heima hjá þér eða ertu forvitin/n um arkitektúr? -

Lögð verður áhersla á að skoða umhverfi sem nemendur þekkja frá arkitektónísku sjónarhorni. Skoðað verður hvernig hægt er að fá hugmyndir að nýrri hönnun úr hinum ýmsu áttum.

Ýmsar stefnur og arkitektar verða kynntir og nemendum gefst tækifæri til að vinna skemmtileg verkefni þar sem þeir fá að láta hugmyndaflugið ráða för.

Kennari: Hildur Gunnlaugsdóttir

Hildur lauk mastersnámi í arkitektúr í júní 2008. Meðan á námi stóð var hún einnig í árs skipulagsnámi í Edinborg og í skiptinámi eina önn við leikmyndagerð í Den Danske Filmskole.

Hildur hefur unnið á teiknistofum í Reykjavík og er nú meðeigandi teiknistofunnar Skyggni Frábært.

Nú stundar hún nám í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands, þar sem hún sérhæfir sig í þátttöku almennings við gerð skipulags.

Skrá mig á námskeið

 









Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica