Til stjarnanna með Ad Astra
Spennandi þekking á háskólastigi fyrir flotta krakka
Viltu læra meira?
Viltu vinna með námsfúsum nemendum undir handleiðslu kjarnorkuverkfræðinga, taugasérfræðinga, stjórnmálafræðinga, stjórnmálamanna, stærðfræðinga og annarra starfandi vísindamanna?
Þá eru námskeið Ad Astra eitthvað fyrir þig!
- Námskeiðin eru fyrir nemendur í 6.-10. bekk
- Kennt verður á laugardögum, 90 mínútur hvern dag, í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2.
- Kennsla hefst laugardaginn 6. febrúar og lýkur laugardaginn 27. mars 2010.
- Nemendur geta valið eitt til þrjú námskeið þar sem farið verður í undirstöðuatriði hverrar greinar
- Eitt námskeið kostar 16.500 krónur, tvö kosta 27.000 krónur og þrjú kosta 39.000.
Systkini fá 15% afslátt af heildarverði. - Hægt er að nota Frístundakort ÍTR og hvatapeninga viðkomandi bæjarfélags sem niðurgreiðslu á námskeiðið.
- Stundatöflu og frekari upplýsingar um tilhögun námskeiða er hægt að finna á heimasíðu Ad Astra.
- Hægt er að skrá sig á námskeiðin á vef opna háskólans og heimasíðu Ad Astra.
- Frekari fyrirspurnir sendist á fyrirspurnir@adastra.is


