... með skemmtilegum stærðfræðiþrautum

Láttu þig hlakka til - Ólympíustærðfræðin hefst aftur í janúar 2012.
Ólympíustærðfræði byggir á þrautum sem reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Markmiðið með námskeiðinu er að örva áhuga á stærðfræði með því að nota stærðfræði sem þau hafa lært í skólanum til að leysa þrautir. Þrautirnar eru erfiðar, en skemmtilegar, og með hvatningu og stuðningi leiðbeinenda læra nemendurnir að leysa þær. Með því að glíma reglulega við þrautir byggja þau upp færni í þrautalausnum. Við það styrkist hæfileikinn til að hugsa rökrétt, draga ályktanir, og vera úrræðagóður og þrautseigur.
Markmið Ólympíustærðfræði
- að örva áhuga á stærðfræði
- að kynna mikilvæg stærðfræðileg hugtök
- að æfa meginaðferðir við þrautalausnir
- að þróa stærðfræðilegan sveigjanleika í þrautalausnum
- að styrkja stærðfræðilegt innsæi
- að örva sköpun og hugvit í stærðfræði
- að veita ánægju og spennu með því að takast á við krefjandi verkefni
Alþjóðlegt verkefni
Dr. George Lenchner stofnað til stærðfræðikeppni með þessu sniði árið 1977. Nú eru þátttökulöndin rúmlega 40, liðin um 5000 talsins og þátttakendur 150.000 börn um allan heim.
Fyrir hverja?
Ólympíustærðfræði
- er fyrir krakka sem hafa gaman af þrautum
- er námskeið fyrir krakka í 5. til 8. bekk grunnskóla
- er fyrir krakka sem fá snjallar hugmyndir
- er fyrir krakka sem vilja prófa eitthvað öðruvísi
NemendurNámskeiðið er fyrir nemendur í 5.-6. bekk annars vegar og 7.-8. bekk hins vegar. Hvor aldurshópur myndar stærðfræðilið í sínum skóla. Efnið höfðar til mjög breiðs hóps nemenda, þeirra sem hafa gaman af þrautum og þeirra sem hafa sérstakan áhuga á stærðfræði. Stuðningur foreldra og áhugi á því sem börnin eru að glíma við er ómetanlegur og eykur á ánægju og metnað nemendanna.
Fyrirkomulag námskeiða
Námskeiðið stendur yfir í 20 vikur, frá byrjun október og fram í lok mars. Það fer fram eftir að skóladegi lýkur í þátttökuskólunum, einu sinni í viku í klukkutíma í senn. Námskeiðið skiptist í æfingar og keppnir. Æfingar eru einu sinni í viku og keppni einu sinni í mánuði. Á æfingum vinna nemendur í hópum og læra hver af öðrum til að styrkja sitt lið. Keppnin er unnin einstaklingslega og teljast stigin á henni bæði til einstaklingsins og liðsins.
Nánari upplýsingar og fyrirkomulag
Námskeiðið stendur í 20 vikur og kostar aðeins kr. 2000. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Fyrirspurnum er beint á os@hr.is.

