Beint í leiðarkerfi vefsins.
Opni háskólinn í HR vinnur með Ad Astra og Franklin Covey að því að leyfa námsfúsum og bráðgerum börnum að njóta sín í þekkingarleit sinni!
Ad Astra hefur það að markmiði að skipuleggja og veita námsfúsum börnum verkefni við hæfi. Fjöldi námskeiða eru í boði ár hvert fyrir áhugasöm börn.
Næstu námskeið hefjast 6. febrúar 2010.
- Kynntu þér næstu námskeið hér! -
Opni háskólinn vinnur í grunnskólum landsins með 7 venjur til árangur fyrir ungt fólk (7 Habits of Highly Effective Teens). Lífsleikni, gildi og tryggð við sýn leiða þig til árangurs.
- Kynntu þér málið hér!
Ólympíustærðfræði hefst aftur í janúar 2012 - nánari upplýsingar fljótlega!
Sem hluti af átakinu „Stærðfræði er skemmtileg" býður Háskólinn í Reykjavík upp á námskeið í Ólympíustærðfræði fyrir grunnskólabörn í 5. - 8. bekk. Ólympíustærðfræði eru þrautir sem settar eru fram í formi keppna. Þær reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Þetta eru skemmtileg og krefjandi verkefni fyrir þá sem hafa gaman af að glíma við þrautir og að reikna. Áhersla er lögð á ánægju af stærðfræði, innsæi og samvinnu.
- Taktu þátt í Ólympíustærðfræði hér!
Föstudaginn 24. júní útskrifaði Opni háskólinn 29 nemendur úr þremur námsbrautum. 6 nemendur útskrifuðust af námsbraut í Markaðssamskiptum og almannatengslum, 14 nemendur úr námsbraut í Verkefnastjórnun, 8 nemendur úr námsbraut í Mannauðsstjórnun og að auki var 1 nemandi að ljúka námsbraut í Stjórnun og rekstri fyrirtækja.
Þór Clausen forstöðumaður og Tinna Ösp Ragnarsdóttir verkefnastjóri hjá Opna háskólanum útskrifuðu nemendur.
Veittar voru viðurkenningar fyrir besta námsárangur í hverri braut fyrir sig. Viðurkenningar hlutu Jón Örn Guðmundsson í Markaðssamskiptum og almannatengslum, Guðrún Dröfn Gunnarsdóttir í Verkefnastjórnun og Anna Lára Guðfinnsdóttir í Mannauðsstjórnun. Þar að auki veitti Árni Árnason verðlaun fyirr hönd Gott Korts fyrir besta lokaverkefnið í Markaðssamskiptum og almannatengslum.
NánarHáskólinn í Reykjavík brautskráði í dag 23 nemendur með frumgreinapróf. Brautskráningin fór fram í nýju húsi Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík.
Við athöfnina flutti Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans ávarp. Af hálfu útskriftarnema talaði Lilja Björg Guðmundsdóttir og af hálfu eldri nemenda Þórhallur Sverrisson hagfræðingur og leikari. Langholtsdætur fluttu nokkur lög við athöfnina.
Við brautskráninguna hlaut Heiðar Jón Heiðarsson viðurkenningu Samtaka iðnaðarins fyrir bestan árangur í frumgreinanámi. Ingi Bogi Bogason, forstöðumaður mennta- og mannauðs afhenti Heiðari viðurkenninguna. Eftir að nemendur höfðu fengið skírteini sín talaði rektor Háskólans í Reykjavík dr. Ari Kristinn Jónsson.
Nánar
Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
Við kynnum fjölbreytt námsfraboð Opna háskólans í HR á haustönn. Styrktu stöðu þína og virkjaðu ný sóknarfæri með því að taka þátt í nýjum námsbrautum, lengri námskeiðum og styttri opnum hámskeiðum. Nánar hér.
NánarFöstudaginn 16. apríl útskrifuðust 24 nemendur úr tryggingaskólanum. Vátryggingarnám HR er í samvinnu við tryggingafélögin. Námið er í 3 hlutum og alls 135 klst.

Nú þegar hafa margir sótt um frumgreinanám á haustönn 2010 og eru umsóknir um 30% fleiri en á sama tíma í fyrra. Nemendur bera frumgreinanámi HR mjög vel söguna en þetta nám stendur á gömlum merg og er löngu búið að sanna sig sem góður undirbúningur fyrir háskólanám. Reynt verður að svara umsóknum fljótt og vel en til þess að hægt sé að afgreiða umsókn þurfa tilskilin fylgigögn, þ.e. staðfest afrit af námsferli og starfsvottorð, að berast skólanum og er best að senda þau til HR - Frumgreinanám, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík. Einnig er hægt að koma með fylgigögn í afgreiðsluna á 5. hæð í Ofanleiti. Nánar hér.
Nánar
Samkvæmt samantekt Stjórnmenntar Opna háskólans lítur út fyrir að íslenskir stjórnendur og sérfræðingar hafi lagt áherslu á að efla færni og þekkingu starfsmanna sinn og sjálfrar sín á síðastliðnu ári þrátt fyrir kreppu.
NánarReiknisskiladagur FLE 2009 fer fram þann 18. september n.k. Yfirskrift ráðstefnunnar er "Fjármálakreppan á Íslandi - brást umgjörð reikningsskila?
NánarNámskeiðið "Ábyrgð og árangur stjórnarmanna lífeyrissjóða" er sérsniðið að lífeyrissjóðunum og er haldið í samstarfi við ASÍ og viðurkennt af FME. Mikill áhugi er fyrir þessu námskeiði og er það senn að verða fullbókað. Upplýsingar um námið má finna hér
NánarStaðarlota fer fram dagana 21. - 23. ágúst í stofu 227 að Höfðabakka 9 Dagskráin hefst með móttöku nema kl. 8:30.
NánarFrábær þátttaka var á námskeið úm jákvæða sálfræði sem Opni háskólinn í HR hélt í samstarfi við Kennslu- og lýðheilsudeild og Lýðheilsustofnun. Námskeiðið var ha
NánarMikill áhugi á námskeiði fyrir stjórnarmenn fyrirtækja og stofnana
NánarSkráning á námskeið Fagmenntar í fullum gangi. Úrval öflugra námskeiða í lengra og styttra námi - til háskólaeininga eða beinnar hagnýtingar bíða þín.
NánarDiplómanám í markaðssamskiptum og almannatengslum
NánarNemendur frá Úganda og Kína sækja námskeið Opna háskólans í HR
NánarSamstarfssamningur Opna háskólans og Skipta undirritaður á sviði MIT Industry Liason Program
NánarOpni háskólinn í HR býður framsækin ungmenni velkomin í háskólasamfélagið.