Klak - nýsköpunarmiðstöð

Öflugir samstarfsaðilar

 

Klak lógóOpni háskólinn í HR er stoltur af því að vinna í nánu samstarfi við Klakið, sem er framsækið nýsköpunarhús sem kemur að mótun, mati og útfærslu viðskiptahugmynda sem byggir á nýsköpun og upplýsingatækni.

Framtíðarsýn Klaks er að vera á meðal fremstu nýsköpunarhúsa á sviði upplýsingatækni, hugbúnaðar- og orkuvinnslu. Félagið sé eftirsóknarvert sem samstarfs- og þjónustuaðili meðal sprotafyrirtækja og fjárfesta. Þjónusta félagsins sé framúrskarandi og félagið sjálft góð eign þar sem þekking og tengsl eru nýtt til að gera hana enn verðmætari.

 

Frumkvöðlar geta virkjað kraft hugmynda sinna með stuðningi Klaksins m.a. um

Viðskiptasmiðjuna - Hraðbraut nýrra fyrirtækja
Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins og Háskólinn í Reykjavík hafa komið á fót hraðbraut sem gefur frumkvöðlum möguleika á að stofna ný fyrirtæki eða koma fyrirtækjum sínum á rétta braut. Verkefnið er einungis eitt: Að búa til samkeppnishæft fyrirtæki. Á þessari hraðbraut er boðið upp á námskeið sem skapa nauðsynlega þekkingu, þar eru leiðbeinendur og ráðgjafar sem vísa veginn og það skapast tengsl við aðra frumkvöðla og fjárfesta sem veitir stuðning og orku. Viðskiptasmiðjan er hraðbraut nýrra fyrirtækja.

Stök nýsköpunarnámskeið

Boðið er upp á fjölda stakra námskeiða um gerð viðskiptaáætlana, stofnun og rekstur fyrirtækja.  Kynntu þér framboðið hér.

Húsnæði, stuðningi og aðstöðu
Hjá Klaki - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins geta sprotafyrirtæki nýtt húsnæði í takt við þarfir hverju sinni. Klakið er með aðstöðu að Kringlunni 1 og að Höfðabakka 9. Með því að nýta húsnæði í Klakinu njóta sprotafyrirtæki þess ávinnings sem felst í návist við önnur sprotafyrirtæki.

Iceland Angels

Iceland Angels er fyrsta íslenska englanetið. Hlutverk Klaks er að vera rekstraraðili netsins og tryggja bæði framboð áhugaverðra viðskiptatækifæra fyrir íslenska viðskiptaengla og að halda utan um íslenska englanetið.








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica