Námskeiðslýsingar fyrir fjarnám á 2.önn
Haustönn (birt með fyrirvara um breytingar)
F EFN 1005 EFNAFRÆÐI
Önn: Haustönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: Fjarnám: 15 vikur með 2 staðarlotum og verklegum æfingum. Skilyrði fyrir
próftöku er 100% þátttaka í verklegum æfingum með viðunandi árangri.
Lýsing: Farið í stærðir, mælingar og marktæka stafi í útreikningum, helstu fræðilegu atriði atómsins og hvernig frumefnin raðast í lotukerfið. Grundvallaratriði mólreikninga og útreikninga á mólstyrk eru kennd. Farið í efnaformúlur, heiti efnasambanda, stillingu á efnajöfnum og orku í efnahvörfum. Farið í hlutfallaefnafræði og efnagreiningu. Fjallað verður um umhverfisáhrif efna
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar og dæmi á hljóðglærum. Verklegar æfingar í staðarlotum.
Námsmat í fjarnámi: Starfseinkunn 20% byggð á skiladæmum, skyndiprófum og skýrslugerð úr verklegum æfingum. Skriflegt próf í lok annar (3 klst.) 80%.
F ENS 2005 ENSKA
Önn: Haustönn 2012
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: F ENS 1005/Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: Fjarnám: 15 vikur með 2 staðarlotum.
Kennari: Guðmundur Edgarsson M.Paed.
Lýsing: Vandlega lesnir textar um margvísleg efni, almenn, raunvísindaleg og tæknileg. Efnið lesið, skýrt og rætt á ensku. Smásögur lesnar og ræddar efnislega á ensku. Margvíslegar skriflegar æfingar.
Kennsluaðferðir: Lögð er áhersla á orðaforða og lestur fag- og vísindatexta svo og hlustun, ritun og tal.
Námsmat í fjarnámi: Starfseinkunn 30%. Hraðlestrarsaga 10%. Munnlegt próf 10%. Skriflegt próf í 2 klst. 50%.
F ÍSL 2005 ÍSLENSKA
Önn: Haustönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfari: F ÍSL 1005/Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: Fjarnám: 15 vikur með 2 staðarlotum.
Lýsing: Ritun: Fjallað um ýmsar tegundir ritsmíða og leiðbeint um meðferð heimilda.
Fjallað um málvöndun og rifjaðar upp helstu stafsetningarreglur.
Ræðumennska: Fjallað um undirbúning fyrir ræður, byggingu og mismunandi ræðuform, þátttöku í fundum o.fl. Þjálfun í framsögn. Nemendur flytja ræður og erindi. Kynning á
tölvutækni við ritun og erindaflutning.
Kennsluaðferðir: Fjarnám: Fyrirlestrar og glærur á neti. Ritgerðir nemenda og erindi í staðarlotu.
Námsmat í fjarnámi: Starfseinkunn 60%, erindi í staðarlotu gildir 15% og skriflegt lokapróf 25%.
Tungumál: Íslenska.
F STÆ 2005
Önn: Haustönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: F STÆ 1005/Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: Staðarnám: 4 kennslustundir á viku í 15 vikur. Fjarnám: 15 vikur með 2 staðarlotum.
Lýsing: Algebrubrot, þáttun, deiling, margliður, jöfnur, ójöfnur, algildisjöfnur, annars stigs jöfnur, fleygbogi, veldareglur, lógaritmar. Könnun falla, hliðrun falla, samsett föll.
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar og dæmi á hljóðglærum.
Námsmat: Í fjarnámi: Starfseinkunn 20%. Skriflegt próf í 3 klst. 80%.
Tungumál: Íslenska.
Vorönn
F DAN 2005 DANSKA – FJARNÁM
Ár: 1. ár.
Önn: Vorönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: F DAN 1003/Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: 15 vikur með 2 staðarlotum.
Hæfniviðmið: Stefnt er að því að nemendur:
• geti skilið inntak ritmáls- og talmálstexta um nokkuð sérhæft efni.
• geti tjáð sig skýrt og skilmerkilega munnlega og skriflega um almennt efni og sérhæft efni sem þeir hafa áhuga á.
• geti beitt mismunandi lestraraðferðum.
• geti notað málið sem tjáskiptatæki bæði til þess að miðla og afla sér þekkingar og reynslu.
Lýsing: Megináhersla er lögð á að auka enn orðaforða. Textar eru ýmist vandlega lesnir eða hraðlesnir. Nemendur eru þjálfaðir í að nota algeng orð og orðasambönd í ræðu og riti. Talþjálfun miðar að því að nemendur læri að orða hugsanir sínar skýrt og skilmerkilega í samtölum og frásögnum.
Lesefni: Hafdís Ingvarsdóttir o.fl., Sådan siger man. Hrefna Arnalds, Danskur málfræðilykill. Steen Langstrup, Stikker. Lise Bostrup, Danskere- En lærebog i dansk for undlændinge. Dönsk-dönsk orðabók (t.d. Politikens Retskrivnings- og betydningsordbog).
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar og útskýringar á glærum og hljóðglærum.
Námsmat: Starfseinkunn 30%. Hraðlestrarsaga 10%. Munnleg verkefni 10%. Skriflegt próf í 2 klst. 50%.
Tungumál: Danska (og íslenska).
F EÐL 1015 EÐLISFRÆÐI - FJARNÁM
Ár: 1. ár.
Önn: Vorönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: 15 vikur með 2 staðarlotum. Í staðarlotu 8 verklegar æfingar.
Ath. Skilyrði fyrir próftöku á lokaprófi er 100% þátttaka í verklegum æfingum með viðunandi árangri.
Hæfniviðmið: Í lok námskeiðsins eiga nemendur að:
• hafa öðlast skilning á grundvallaratriðum eðlisfræðinnar og geti beitt þeim við úrlausn verkefna sem lögð eru fyrir í áfanganum.
• hafa þjálfast í að framkvæma ýmsar mælingar í verklegum tímum og gera athuganir.
• hafa lært að setja fram niðurstöður í skýrslum úr verklegum tímum.
Lýsing: Eðlisfræðasvið: AFLFRÆÐI
Kynning á eðlisfræði. Verkfæri eðlisfræðinnar. Dæma-/Verkefnalausnir. Vigrar. Hreyfing. Kraftur. Skriðþungi. Sampunkta og samsíða kraftar. Vinna og orka. Snúningshreyfing. Einfaldar vélar.
Lesefni: Applied Physics: International Edition, 9. og/eða 10. útgáfa. Höfundur: Dale Ewen, Neill Schurter og Erik Gundersen.
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar á hljóðglærum. Verklegar æfingar í staðarlotum.
Námsmat: Starfseinkunn 20% byggð á skiladæmum, skyndiprófum og skýrslugerð úr verklegum æfingum. Skriflegt próf í lok annar (3 klst.) 80%.
F STÆ 2105 STÆRÐFRÆÐI – FJARNÁM
Ár: 1. ár.
Önn: Vorönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: F STÆ 1103 /Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: 15 vikur með 2 staðarlotum.
Hæfniviðmið: Í lok námskeiðsins eiga nemendur að:
• hafa náð tökum á því að vinna með vektora í tvívíðu hnitakerfi, lært helstu reiknireglur, svo sem samlagningu, margfeldi, innfeldi og geta fundið þvervektor og ofanvarp á línu og skilji hvernig vektorar tákna bæði kraft og stefnu.
• geta notað vektora til að finna ýmsar stærðir í m.a. þríhyrningum og samsíðungum.
• geta fundið fjarlægðir í tvívíðu hnitakerfi.
• geta fundið horn á milli vektora og beitt hornafallareglum.
• geta fundið stikaform ferla.
Lýsing: Kynning á vektorhugtakinu og reiknireglum vektora s.s. samlagning, hallatala, lengd, blandað margfeldi, innfeldi, þvervektor, grunnreglur hornafallanna, sinus-og kósínusreglan. Vektorstærðfræði beitt við útreikninga á stærðum tengdum þríhyrningum, og samsíðungum. Stikaform hringa,lína og annarra ferla. Ofanvarp á línu og ofanvarpsvektor. Fjarlægðir í tvívíðu hnitakerfi.
Lesefni: Jón Hafsteinn Jónsson o.fl., STÆ 303.
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar og dæmi á glærum og hljóðglærum.
Námsmat: Starfseinkunn 20%. Skriflegt próf í 3 klst. 80%.
Tungumál: Íslenska.
F ÞÝS 1005 ÞÝSKA - FJARNÁM
Ár: 1. ár.
Önn: Vorönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: 15 vikur með 2 staðarlotum.
Hæfniviðmið: Stefnt er að því að nemendur:
• geti skilið einfalda almenna texta og samtöl
• geti lesið einfalda texta með réttum framburði
• geti haldið uppi einföldum samræðum um almenn málefni
• geti ritað stuttan, samfelldan texta á einföldu máli.
Lýsing: Textar lesnir, skýrðir og þýddir á íslensku eftir því sem tilefni er til. Hlustað á texta og samtöl og framburður æfður í tengslum við textalestur. Farið yfir málfræðiatriði sem fylgja hverjum kafla. Munnlegar og skriflegar æfingar, spurt og svarað á þýsku. Ritunarverkefni og sagnapróf eru unnin í tengslum við námsefnið.
Námsefni: Aufderstrasse o.fl. Themen aktuell 1, Kursbuch + Arbeitsbuch. Orðabók.
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar og útskýringar á glærum og hljóðglærum.
Námsmat: Starfseinkunn 40%, munnleg verkefni 10% og skriflegt próf 2 klst. 50%.
Tungumál: Þýska (og íslenska).

