Fjarnám 1.önn

Námskeiðslýsingar fyrir fjarnám á 1.önn

Haust- og vorönn (birt með fyrirvara um breytingar)

F ÍSL 1005 ÍSLENSKA
Ár: 1. ár
Önn: Haustönn, vorönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfari: Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: Fjarnám í 15 vikur með tveimur staðarlotum.
Kennari: Sólrún Geirsdóttir BA.
Hæfniviðmið:
Stefnt er að því að nemendur:
• þekki helstu atriði íslenskrar málfræði og geti nýtt þau við stafsetningu.
• fái þjálfun í að skrifa stuttar ritgerðir og útdrætti.
• öðlist skilning á uppbyggingu texta og þekki helstu hugtök bókmennta.
Lýsing: Upprifjun í málfræði, einkum orðflokkagreining og sagnbeyging. Stöðupróf í stafsetningu og í kjölfar þess farið yfir helstu reglur í stafsetningu. Smásögur lesnar með hliðsjón af helstu hugtökum í bókmenntagreiningu. Stuttar ritgerðir og útdrættir. Hraðlestrarsaga.
Lesefni: Stjörnurnar í Konstantínópel – sýnishorn íslenskra smásagna frá 1847-1997 (Halla Kjartansdóttir valdi sögurnar). Sýnishorn íslenskra ljóða (á kennsluvef frá kennara). Ingibjörg Axelsdóttir og Þórunn Blöndal, Handbók um ritun og frágang, (10. útgáfa 2010). Kristín Steinsdóttir, Ljósa (hraðlestrarsaga).
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar. Ritæfingar og ýmis verkefni nemenda.
Námsmat: Starfseinkunn 50%. Skriflegt próf í 3 klst í lok annar 50%. Lokapróf í málfræði (hluti af starfseinkunn) fer fram fyrr á önninni og er skylda.
Tungumál: Íslenska.

 

 

F DAN 1005 DANSKA
Ár: 1. ár.
Önn: Haustönn, vorönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: Fjarnám í 15 vikur með tveimur staðarlotum. 
Kennari: Anna Guðrún Edvardsdóttir M. Ed.
Hæfniviðmið:
Stefnt er að því að nemendur:
• geti skilið talað og ritað mál almenns eðlis.
• geti tjáð sig skýrt og skilmerkilega munnlega og skriflega um almennt efni.
• hafi skilning á og geti beitt helstu málnotkunarreglum.
• geti nýtt sér hjálpargögn á markvissan hátt.
Lýsing: Megináhersla er lögð á að auka orðaforða og lesskilning nemenda. Textar eru ýmist vandlega lesnir eða hraðlesnir. Málnotkun þjálfuð, bæði munnlega og skriflega, með margvíslegum æfingum í tengslum við viðfangsefnið. Nemendur eru þjálfaðir í framburði og réttritun og læra að beita algengustu málfræðireglum. Lögð er áhersla á að nemendur geti nýtt sér hjálpargögn í námi sínu.
Lesefni: Hafdís Ingvarsdóttir o.fl., Sådan siger man. Hrefna Arnalds, Danskur málfræðilykill. Grethelise Holm: Farlige følelser.  Jette Dige Petersen, Dansk, - åhhh hjælp (ný útgáfa haust 2011) og verkefnahefti. Dönsk-dönsk orðabók (t.d. Poltikens Retskrivnings- og betydningsordbog).
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar og æfingar, einstaklingsvinna, paravinna, hópvinna.
Námsmat: Starfseinkunn 50%. Skriflegt próf í 2 klst. 50%.
Tungumál: Danska (og íslenska).

 

 

F ENS 1003 ENSKA
Ár: 1. ár.
Önn: Haustönn, vorönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: Fjarnám í 15 vikur með tveimur staðarlotum.
Kennari: Albertína Fr. Elíasdóttir BA.
Hæfniviðmið:
Stefnt er að því að nemendur:
• öðlist skilning á almennum textum með hraðlestri og raunvísinda- og tækniorðaforða með því að lesa texta vandlega.
• styrki málfræðikunnáttu, stafsetningu og notkun orðabókar.
• læri að tjá sig munnlega og skriflega svo og að hlusta á aðra.
Lýsing: Vandlega lesnir textar um raunvísindaleg og tæknileg efni. Einnig textar um almenn efni, t.d. „multiple choice comprehension“- textar. Textar úr blöðum og tímaritum. Textar ræddir á ensku og þýddir ef nauðsyn krefur. Allar málfræðiæfingar í tengslum við textana teknar munnlega eða skriflega eftir því sem við á. Þekking í málfræði styrkt, m.a. með stílagerð. Smásögur lesnar og ræddar á ensku. Endursagnir byggðar á lesnum smásögum. Notkun orðabóka æfð. Námsefni :   J.R.R, Tolkien The Hobbit.Raymond Murphy, Norbert Scmitt og Diane Scmitt: Focus on Vocabulary – Mastering the Academic Word List. Ný Ensk Málfræði Fyrir Framhaldsskóla.
Kennsluaðferðir: Lögð er áhersla á tvenns konar lestur. Sumir textar eru vandlega lesnir og þýddir yfir á íslensku eða léttari ensku. Aðrir textar eru hraðlesnir og efnið er rætt og þýtt yfir á léttari ensku. Hljóðglærur.
Námsmat: Starfseinkunn 30%. Hraðlestrarsaga 10%. Munnlegt próf 10%. Skriflegt próf í 2 klst. 50%.
Tungumál: Enska (og íslenska).

 

F STÆ 1005 STÆRÐFRÆÐI
Ár:
1. ár.
Önn: Haustönn, vorönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: Fjarnám í 15 vikur með fjarfundi og  staðarlotu.
Kennari: Ólafur Jens Sigurðsson BS.
Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðsins eiga nemendur að:
• hafa öðlast færni í bókstafareikningi.
• hafa þjálfast í að liða, þátta og vinna með heil veldi og ferningsrætur.
• hafa lært að finna lausn á tveimur jöfnum með einni eða tveimur óþekktum stærðum.
• geta unnið með hlutföll og prósentur og vaxtareikning.
• hafa náð færni í að teikna línu í tvívíðu hnitakerfi, og skilji hvernig hún er samsett og   geti skrifað upp jöfnulínu út frá punktum. Lýsing: Liðun, þáttun, veldi, rætur, hlutföll, talnareikningur, brot, brotabrot, hnitakerfið, línan, margliða, jöfnur með einni og tveimur óþekktum stærðum, prósentur, vextir.
Lesefni: Jón Hafsteinn Jónsson o.fl. STÆ 103.
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar og hljóðglærur. 
Námsmat: Starfseinkunn 20%. Skriflegt próf í 3 klst. 80%.
Tungumál: Íslenska

 

 

F STÆ 1105 STÆRÐFRÆÐI
Ár:
1. ár.
Önn: Haustönn, vorönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: Fjarnám í 15 vikur með fjarfundi og  staðarlotu.
Kennari: Ólafur Jens Sigurðsson BS.
Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðsins eiga nemendur að:
• hafa kynnst frumhugtökum rúmfræðinnar.
• þekkja skilgreiningar á hæð, miðlínu, helmingalínu horns og miðþverli og geta teiknað þessar línur inn á mynd.
• þekkja skilgreiningu á ferilhorni og vita að það er jafnt hálfum boganum sem það spannar.
• kunna skilgreiningar á helstu hugtökum varðandi flatarmyndir og flatarmál og geta beitt þeim.
• kunna skilgreiningar á helstu hugtökum varðandi rúmmyndir og rúmmál og geta beitt þeim.
• þekkja reglur um miðpunkta umritaðs og innritaðs hrings í þríhyrningi.
• þekkja helstu reglur um einslögun, hlutföll og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi, og geta beitt  þeim við útreikninga á hliðum og hornum.
Lýsing: Reikningur með bókstöfum, jöfnur, frumhugtök rúmfræðinnar og grundvallarreglur, hornaföll, flatarmál, rúmmál.
Lesefni: Jón Hafsteinn Jónsson o.fl., STÆ 103.
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar og hljóðglærur.
Námsmat: Starfseinkunn 20%. Skriflegt próf í 3 klst. 80%.
Tungumál: Íslenska.

 

 

F TÖL 1005 TÖLVUFRÆÐI
Ár: 1. ár.
Önn: Haustönn.
Stig námskeiðs: Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs: Skyldunámskeið.
Undanfarar: Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag: Fjarnám í 15 vikur með tveimur staðarlotum.
Kennari: Sólrún Geirsdóttir BA.
Hæfniviðmið:
Stefnt er að því að nemendur:
• geti notað tölvupóst og veraldarvefinn.
• geti sett upp skjöl með m.a. köflum og millifyrirsögnum, neðanmálsskýringum og efnisyfirliti.
• geti nýtt sér töflureikni við m.a. útreikninga.
• geti nýtt sér forrit til glærugerðar.
Lýsing: Veraldarvefurinn, tölvupóstur, skipulag skjala á tölvutæku formi.
Ritvinnsla: Frágangur skjala með kafla- og millifyrirsögnum, haus og fætur skjala, neðanmálsskýringar og efnisyfirlit. Gerð taflna og tölusettra lista. Útlitsmótun málsgreina og blaðsíðna.
Töflureiknir: Almenn notkun til útreikninga, innbyggð föll, Goal Seek..., gerð myndrita og útlitsmótun vinnublaða
Glærugerð: Útlitsmótun, skiptingar og hreyfingar, tenging við veraldarvefinn og önnur skjöl við glærukynningar. Notkun glósa og prentun dreifiblaða.
Lesefni:
Jóhanna GeirsdóttirUpplýsinga- og tölvunotkun (UTN), kennslubók með verkefnum fyrir byrjendur. Office 2010.
Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar og verkefnatímar.
Námsmat: Starfseinkunn 100%.
Tungumál: Íslenska.

 

 

F BÓK 1005 BÓKHALD
Ár:
1. ár.
Önn:
Haustönn.
Stig námskeiðs:
Frumgreinanám.
Tegund námskeiðs:
Skyldunámskeið.
Undanfarar:
Almenn inngönguskilyrði.
Skipulag:
Fjarnám í  15 vikur með tveimur staðarlotum.
Kennari:
Margrét Högnadóttir BS.
Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðsins eiga nemendur að:
• hafa öðlast skilning á bókhaldshringrásinni.
• hafa tileinkað sér helstu reglur tvíhliða bókhalds.
• hafa öðlast þjálfun í að meðhöndla virðisaukaskatt  í   bókhald
• geta sett upp rekstrar- og efnahagsreikninga
Lýsing:
Bókhaldshringrásin og helstu reglur tvíhliða bókhaldskerfis. Opnun, færslur og lokun bókhalds eftir rekstrartímabilum. Uppsetning rekstrar- og efnahagsreikninga. Lagfæringar á bókhaldinu með tilliti til athugasemda.
Lesefni:
Sigurjón Valdimarsson, Tvíhliða bókhald  1,33.  2011 útgáfa.      
Kennsluaðferðir:
Fyrirlestrar og hljóðglærur.
Námsmat:
Starfseinkunn 30%. Skriflegt próf 70%.
Tungumál:
Íslenska.

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica