Ég hafði lengi velt fyrir mér frekari menntun þar sem ég hrökklaðist snemma úr námi vegna námsörðugleika sem tengdust lesblindu. Áður var ég stundum að taka einhverjar einingar í kvöld- og fjarnámi en sá fram á að það tæki mig mörg ár að klára einhvern áfanga. Þegar ég frétti af frumgreinanámi HR var ekki spurning að það hentaði mér. Bekkjarkerfi, fólk á mínu reki, fólk með metnað og áhuga á náminu. Þar sem allir stefndu að því sama, það er að segja, námi á háskólastigi. Eftir útskrift hóf ég nám í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Námið úr frumgreinunum hefur nýst mér afar vel í tölvunarfræðinni og ekki síður byggt upp sjálfstraust mitt.
Sigrún Inga Kristinsdóttir, nemi í tölvunarfræði

