Staðarlotur

Staðarlotur fyrir 1. önn og 2. önn í fjarnámi

Fjarnám byggist á mikilli skipulagningu og vinnu – fjarnám krefst meiri skipulagningar af hálfu nemenda en venjulegt staðbundið nám og því er mikilvægt að nemendur nýti sér þessi tækifæri til að hitta kennara.  Nemendur eru einnig hvattir til að koma á framfæri við kennara ef þeir hafa óskir um eitthvað sérstakt sem þeim finnst mikilvægt að sé tekið fyrir í staðarlotum, efni sem þeir eru í erfiðleikum með eða sem þeim finnst þeir þurfa nánari útskýringar við eða umfjöllun.

Mjög mikilvægt er að nemendur mæti í staðarlotur þar sem það er eina tækifæri nemenda til að hitta kennara og fara nánar yfir atriði sem ekki er hægt að taka fyrir í upptökum á netinu.  Nemendur eru því hvattir til að taka þessar tvær helgar á önninni strax frá og gera ráðstafanir varðandi ferðir til Ísafjarðar.  Ef nemendur ætla að fljúga til Ísafjarðar er hægt að fá ódýrara flug ef pantað er með góðum fyrirvara.  Svo er auðvitað hægt að taka sig nokkur saman og safnast í bíla, sem gerir ferðina enn ódýrari. 

 

Næsta staðarlota í Reykjavík 13.-15.mars 2012

Næsta staðarlota á Ísafirði er 16.-18.mars 2012 

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica