Nefndir og ráð
Námsmatsnefnd
Námsmatsnefnd samanstendur af þremur starfsmönnum sem kosnir eru á sviðsfundi frumgreinasviðs til eins árs í senn. Einn af þeim er formaður nefndarinnar og er hann ábyrgur fyrir því að boða fundi. Hlutverk námsmatsnefndar er eftirfarandi:
Afgreiða undanþágubeiðnir nemenda í tengslum við námsframvindu.
Sjá um mat á námi/námskeiðum úr öðrum skólum.
Hafa umsjón með yfirferð á umsóknum nemenda. Veturinn 2010 - 2011 sitja eftirfarandi frumgreinakennarar í nefndinni:
Karl Hinrik Jósafatsson, formaður
Guðmundur Edgarsson
Vigdís Hjaltadóttir
Fagráð
Fagráð er stefnumótandi og ákvarðandi um starf frumgreinasviðsins hvað varðar námsgreinar og námsskipulag. Fagráð skal með ákvörðunum sínum vinna að því meginmarkmiði frumgreinasviðs að búa nemendur undir áframhaldandi nám á háskólastigi. Í fagráði eiga sæti, auk forstöðumanns frumgreina, tveir fulltrúar kennara frumgreinanáms kosnir á sviðsfundi til tveggja ára í senn. Á sviðsfundi þann 15. september s.l. voru eftirfarandi kennarar kosnir í fagráð:
Anna Bragadóttir
Snjólaug Steinarsdóttir
Varamenn
Björg Hilmarsdóttir
Kristján Karlsson
Námsráð frumgreinanáms HR
Hlutverk námsráðs er m.a. að fjalla um:
Uppbyggingu námsbrauta og þróun þeirra
Uppbyggingu nýrra námsbrauta eða námsleiða
Gæðamál sem varða nám og kennslu
Námsráð er þannig skipað:
Björg Hilmarsdóttir, frumgreinakennari
Daníel Viðarsson, frumgreinakennari
Jón Þórir Þorvaldsson, nemandi á 4. önn
Sviðsfundir
Sviðsfundir frumgreinasviðs eru að jafnaði haldnir tvisvar á önn. Sviðsfundir eru samráðsvettvangur nemenda og kennara. Á sviðsfundum er fjallað og ályktað um fagleg málefni frumgreinasviðs. Fundina sitja allir kennarar frumgreinasviðs og einn fulltrúi nemenda úr hverjum bekk.

