3.4.Við mat á fyrra námi gildir almennt að námskeið eldri en 7 ára eru ekki metin.
Nemendur með eldri námsferla geta sótt um að þreyta matspróf frumgreinasviðs í þeim áföngum sem þeir
hafa lokið í öðrum skólum og teljast hliðstæðir áföngum í frumgreinanámi. Standist þeir matspróf geta þeir hafið nám í næsta áfanga (eftirfara). Nemendur með lokapróf úr framhaldsskóla þurfa ekki að taka matspróf. Sérhvert matspróf, allt að þremur prófum, kostar 7.500 kr., en 5.000 kr. sérhvert próf umfram það. Að öllu jöfnu fara prófin fram á sjúkra- og endurtektarprófatímabili vorannar og haustannar. Sækja þarf um og greiða uppsett verð áður en próf hefjast. Skráning hjá Opna háskólanum 2. hæð Mars.
Matspróf fyrir vorönn 2011 verða haldin 4. – 7. janúar 2011.