Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði eru bæði bókleg og verkleg
Eftirtaldir geta sótt um nám á frumgreinasviði:
- Þeir sem lokið hafa skilgreindu starfsnámi, þ.e. burtfararprófi úr iðn-, verkmennta-, fjölbrautaskóla, eða sambærilegu námi. Ath.: Ekki er gerð krafa um sveinspróf.
- Nemendur sem uppfylla ekki skilyrði í númer 1 geta einnig sótt um nám á frumgreinasviði hafi þeir umtalsverða starfsreynslu. Fyrir þessa nemendur er lengd námsins og samsetning háð undirbúningi viðkomandi.
- Nemendur sem þegar hafa lokið stúdentsprófi en hafa ekki nægjanlegan fjölda eininga í stærðfræði og eðlisfræði. Þessir nemendur geta bætt við sig þeim einingum sem upp á vantar á frumgreinasviði og er lengd námsins og samsetning háð fyrra námi viðkomandi.
Sérhver sá sem sækir um nám á frumgreinasviði fær einstaklingsmat inn í námið. Auðvelt er að fá viðtal hjá sviðsstjóra frumgreinasviðs, Málfríði Þórarinsdóttur og hjá Bryndísi Bjarnadóttur, þjónustufulltrúa, áður en sótt er um.
Skólagjöld fyrir hverja önn eru 80.000 kr. Sama gjald reiknast fyrir staðarnám og fjarnám.
Netfang Málfríðar er malfrid@hr.is og vinnusími: 5996438
Netfang Bryndísar er bryndisb@hr.is og vinnusími: 5996387
