Framvindureglur

Reglur um inntöku nemenda, prófkröfur, endurtöku prófa og námsframvindu

Reglur þessar byggjast á almennum námsreglum Háskólans í Reykjavík sem og reglugerð fyrir Háskólann í Reykjavík. Að öðru leyti en hér kemur fram er vísað til þeirra reglna.

 

1. Inntaka nemenda.

2. Eftirtaldir geta sótt um inngöngu

2.1. Þeir sem lokið hafa skilgreindu starfsnámi, þ.e. burtfararprófi úr iðn-, verkmennta-, fjölbrautaskóla, eða sambærilegu námi. Fyrir þessa nemendur tekur námið þrjár annir. Ath.: Ekki er gerð krafa um sveinspróf. 2.2. Nemendur sem þegar hafa lokið stúdentsprófi en hafa ekki nægjanlegan fjölda eininga í einstökum greinum til að komast í háskólanám. Þessir nemendur geta bætt við sig þeim einingum sem upp á vantar á frumgreinasviði og er lengd námsins og samsetning háð fyrra námi.

2.3. Nemendur sem uppfylla ekki skilyrði í númer 1 og 2 geta einnig sótt um nám á frumgreinasviði hafi þeir umtalsverða starfsreynslu. Fyrir þessa nemendur er lengd námsins og samsetning háð undirbúningi.

3. Mat á fyrra námi

3.1. Til þess að nemandi fái nám frá öðrum skólum metið skal hann að öðru jöfnu hafa lokið prófi í hliðstæðum námskeiðum með lágmarkseinkunnina 7,0. Nemandi sem óskar eftir því að fá fyrra nám sitt metið sækir um það til fulltrúa frumgreinanáms á þar til gerðu eyðublaði. 

3.2. Hliðstæð námskeið úr öðrum skólum eru skráð á námsferil sem metið (M). Til að geta útskrifast með frumgreinapróf HR skal þó almennt miða við að nemandi hafi a.m.k. tekið lokaáfanga hverrar námsgreinar. Nemandi sem er skráður í frumgreinanám getur ekki tekið samtímis hliðstæða áfanga úr öðrum skólum og fengið metna inn í frumgreinanámið. Þetta á ekki við um sænsku/norsku og 3. tungumál annað en þýsku.

3.3. Mat náms frá öðrum skólum skal vera í höndum námsmatsnefndar.

3.4. Við mat á fyrra námi gildir almennt að námskeið eldri en 7 ára eru ekki metin.

3.5. Nemandi sem óskar eftir að hefja frumgreinanám að nýju eftir meira en 7 ára hlé skal endurinnritast. Við endurinnritun falla þær einkunnir sem eru lægri en 6,0 niður.

4. Lágmarkseinkunn og fjöldi eininga á önn

4.1. Til að standast námskeið þarf nemandi að fá einkunn 5,0 eða hærri.

4.2. Nemandi getur sjálfur skráð sig í að hámarki 40 f-einingar (fein) á önn. Ef nemandi vill taka fleiri einingar á önn þarf hann að sækja um það til fulltrúa frumgreinanáms. Forstöðumaður metur umsóknir.

5. Endurtekning prófa

5.1. Almennt skilyrði fyrir próftökurétti er að nemandi hafi staðið skil á verkefnum með viðunandi árangri samkvæmt ákvörðun kennara.

5.2. Nemanda er að hámarki heimilt að þreyta próf í tilteknu námskeiði fjórum sinnum. Ef nemandi sem stenst ekki próf sem hann þreytir í fjórða sinn vill halda áfram námi ber honum að sækja um endurinnritun. Sé honum veitt heimild til þess heldur hann einungis þeim námskeiðum sem hann hefur lokið með einkunn 6,0 eða hærri.

5.3. Nú tekur nemandi próf samtímis í undanfara og eftirfara námsgreinar. Hann fær þá ekki einkunn í eftirfara fyrr en tilskilinni einkunn í undanfara er náð.

5.4. Hafi nemandi staðist próf getur hann óskað eftir að endurtaka prófið. Í þeim tilvikum gildir einkunn úr seinna prófinu. Fulltrúi frumgreinanáms og nemendaskrá hafa eftirlit með rétti nemenda til að endurtaka próf.

6. Námsframvinda

6.1. Meginreglan er að til að geta hafið nám á 4. önn þarf öllum námskeiðum 2. annar að vera lokið.

6.2. Nemandi í fullu námi lýkur 75 f-einingum  á tveimur önnum, 115 f-einingum  á þremur önnum og 155 f-einingum á fjórum önnum. Nemandi skal ljúka námi sínu innan 4 ára. Ef námi er ekki lokið 4 árum eftir að nemandi innritaðist ber nemanda að sækja um endurinnritun ef hann vill halda áfram námi og tekur ný innritun mið af gildandi námsskrá hverju sinni. Við endurinnritun heldur nemandi einungis þeim námskeiðum sem hann hefur lokið með einkunn 6,0 eða hærri.

6.3. Nemandi sem lýkur 155 f- eininga námi útskrifast með frumgreinapróf. Nemandi getur sótt um það í upphafi skólaárs að gera hlé á námi sínu eða að stunda nám samkvæmt sérstakri áætlun sem víkur frá ofangreindu. Umsóknin, ásamt áætlun um námsframvindu til námsloka, skal send til fulltrúa frumgreinanáms, studd viðeigandi gögnum.  Gildar ástæður fyrir  námshléi eða hægferð í námi eru t.d. barnsburður eða veikindi.  Námsmatsnefnd metur umsóknir um námshlé eða hægferð.

6.4. Fulltrúi frumgreinanáms og nemendaskrá hafa eftirlit með námsframvindu nemenda.

7. Skiptinemar

7.1. Nemandi sem vill fá heil misseri1 í skiptinámi metin að fullu þarf að leggja fram áætlun fyrir skiptinámið og fá hana samþykkta af námsmatsnefnd áður en skiptinámið hefst.

7.2. Vísað er til greinar 2.2 að ofan varðandi mat á einstökum námskeiðum.

8. Námsstyrkir Frumgreinamenntar

8.1. Þeir nemendur í frumgreinanámi sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga þess kost að fá námsstyrk frumgreinamenntar  og fá skólagjöld næstu annar felld niður. Til þess að vera gjaldgengir  þurfa nemendur , að öllu jöfnu, að ljúka einingum sem svara til fulls náms á viðkomandi önn og þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum viðkomandi annar samkvæmt samþykktri námsáætlun. Eingöngu námskeið sem nemendur ljúka á hefðbundnu próftímabili, eða fyrir þann tíma, eru tekin með við þessa ákvörðun. Í útreikningi á meðaleinkunn gilda eingöngu próf sem tekin eru í fyrsta sinn í tilteknu námskeiði, m.ö.o sjúkrapróf gilda en endurtektarpróf ekki.

9. Annað

9.1. Kennari skal í upphafi námskeiðs leggja fram kennsluáætlun þar sem fram koma, auk efnislegrar lýsingar á viðkomandi námskeiði, skýrar upplýsingar um námsmat og vægi einstakra þátta til lokaeinkunnar. 

9.2. Undanþágur frá reglum þessum eru aðeins veittar með samþykki námsmatsnefndar. Umsóknir um undanþágur skulu sendar til fulltrúa frumgreinanáms, studdar viðeigandi gögnum.

Gildistaka:

Reglur þessar öðlast þegar gildi. Reglur þessar gilda fyrir nemendur sem innrituðust í Háskólann í Reykjavík 1. júlí 2005 eða síðar. Um nemendur sem hófu nám við Tækniháskóla Íslands fyrir 30. júní 2005 gilda eldri reglur um Tækniháskóla Íslands.

Þannig samþykkt á fundi deildarráðs þann 13. febrúar 2007

Þannig samþykkt með áorðnum breytingum 3. mars 2009

þannig samþykkt með áorðnum breytingum 2. febrúar 2010

þannig samþykkt með áorðnum breytingum  7. október 2011








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica