Fjarnám - 1. önn, 2. önn og 3. önn
Frumgreinarnámið er í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða og Þekkingarnet Austurlands.
Kostir fjarnáms: Þessi námsleið hentar þeim sem vegna búsetu eða vinnu hafa ekki tök á því að mæta í kennslustundir. Sjá nánar hér.
Ummæli nemenda í fjarnámi:
Ég kynntist frábæru fólki sem er með mér í fjarnáminu og höfum við reglulega samband og reynum að hittast og læra saman. Ég tel að staðarnámslotan sé mjög góður og skemmtilegur undirbúningur að góðu samstarfi við kennara og aðra nemendur.
Boðið er upp á staðarlotur um helgi 1 - 2svar á önn þar sem nemendur hitta kennara og vinna verkefni með samnemendum. Fjarnám fer fram í sérhönnuðu fjarnámsumhverfi Myschool sem byggir á nettækni.
Í Myschool kerfinu er hægt að:
- Skoða kennsluáætlun og stundatöflu.
- Senda póst.
- Sækja fyrirlestra og verkefni.
- Nálgast efni frá kennurum.
- Skila verkefnum.
- Taka þátt í umræðum á umræðuvefinum.
- Nemendur hafa góðan aðgang að kennurum.
- Taka próf.
1. önn - Haustið 2012
- Bókhald BÓK 1005
- Danska DAN 1005
- Enska ENS 1005
- Íslenska ÍSL 1005
- Stærðfræði STÆ 1005
- Stærðfræði STÆ 1105
- Tölvufræði TÖL 1005
2. önn - Haustið 2012
- Íslenska ÍSL 2005
- Enska ENS 2005
- Stærðfræði STÆ 2005
- Efnafræði EFN 1005
3. önn - Haustið 2012
- Íslenska ÍSL 3005
- Danska DAN 3005
- Stærðfræði STÆ 3005
- Efnafræði EFN 2005

