Hvað segja nemendur
Ummæli nemenda í dagskóla
- "Námið í frumgreinadeildinni er hentugt fyrir þá einstaklinga sem koma af vinnumarkaðnum og eru til að mynda með sveinspróf. Nám þetta er að mínu mati góður undirbúningur fyrir frekara háskólanám vegna þess að það er mikið álag eins og gefur að skilja með 8 áfanga á önn, en jafnframt krefjandi. Mikil stærðfræði- og eðlisfræðikennsla er kostur fyrir þá sem ætla í verkfræði eða tæknifræði og maður heyrir frá verkfræðinemum í HR að þeir sem fara í frumgreinadeildina séu vel undirbúnir í þessum greinum"
- "Frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík er mjög góður undirbúningur fyrir nám á háskólastigi að mínu mati. Tel mig vera vel undirbúna fyrir álagið sem fylgir því. Gerðar eru miklar kröfur til nemenda. Stuðningur er góður og þá sérstaklega milli nemenda. Góðir kennarar hafa líka mikið að segja. Ég er mjög ánægð með námið"
- "Námið hér í frumgreinadeildinni er mjög krefjandi og spennandi. Þetta er mjög góður undirbúningur fyrir háskólanám og opnar margar nýjar leiðir. Bekkjarkerfið hentar vel og mikil samheldni sem fylgir því þannig að maður týnist ekki í fjöldanum"
- "Námið í frumgreinadeildinni kom mér mjög á óvart og þá sérstaklega hvað námið er krefjandi og hvað kennararnir eru góðir. Og þótt að það sé mjög erfitt að koma úr atvinnulífinu aftur í nám eftir nokkurra ára pásu á þetta krefjandi nám eftir að verða gríðarlega góður grunnur"
- "Skemmtilegt og krefjandi nám. Góður stökkpallur fyrir iðnlært fólk , sem hyggur á háskólanám"
- "Námið hefur hjálpað mér gífurlega að bæta mig í stærðfræði og sýnir að ég þarf ekkert að óttast og get farið í allar áttir"
- "Rólegir og góðir kennarar"
- "Mjög góð leið fyrir þá sem hafa iðnmenntun og vilja bæta við sig menntun á háskólastigi"

