Dagskóli
Boðið er upp á 2., 3. og 4. önn í dagskóla.
Kostir dagskóla: Þessi námsleið hentar þeim sem vilja taka mikið nám á stuttum tíma. Sjá nánar hér.
Ummæli nemenda í dagskóla:
Skemmtilegt og krefjandi nám í bekkjarkerfi. Fólk á öllum aldri. Gott aðgengi að kennurum.
- Bekkjarkerfi , hver nemandi er í sama bekknum frá því að hann byrjar í frumgreinanámi
- Kennsla hefst kl. 8:30 og stundataflan er þétt. Kennslu er yfirleitt lokið fyrir kl. 16:00
- Fastráðnir kennarar eru með viðtalstíma einu sinni í viku
- Umsjónarmaður er valinn úr hópi nemenda í hverjum bekk
- Upprifjunarnámskeið í stærðfræði fyrir nemendur sem eru metnir inn á 2. önn
Útskrift 6. júní 2009
Brautskráning nemenda með frumgreinapróf fór fram laugardaginn 6. júní sl. Að þessu sinni útskrifuðust 22 nemendur, 6 konur og 16 karlar. Yfir 80% þeirra stefna að háskólanámi við HR í haust. Mikil aðsókn er að frumgreinanámi og komast færri að en vilja enda hefur það sýnt sig að frumgreinanám HR er góður undirbúningur fyrir háskólanám.
Við útskriftarathöfnina flutti Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna Háskólans, ávarp og fulltrúi útskriftarnema, Erna Björk Ingadóttir og fulltrúi eldri nemenda Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Marorku ávörpuðu samkomuna. Að lokinni brautskráningu flutti rektor skólans, Svafa Grönfeldt, ræðu. Um tónlistina sáu Kristjana Stefánsdóttir, Tómas R Einarsson og Gunnar Gunnarsson.
Tveir nemendur hlutu viðurkenningu fyrir frábæran árangur í frumgreinanámi. Þessir nemendur eru: Gísli Kristján Ólafsson sem fékk viðurkenningu frá Samtökum iðnaðarins og Gunnar Viðar Gunnarsson sem fékk viðurkenningu frá þýska sendiráðinu.
Fleiri myndir frá útskrift á vorönn 2009 má sjá hér.

