Frumgreinar
Frumgreinanám er góður valkostur fyrir fólk úr atvinnulífinu sem þarf frekari undirbúning til áframhaldandi náms á háskólastigi. Opnað hefur verið fyrir umsóknir um skólavist haustið 2010.

Frumgreinanám hentar líka stúdentum sem þurfa að bæta við sig námi í stærðfræði og raungreinum.
Frumgreinanám Háskólans í Reykjavík byggir á rúmlega 40 ára gamalli hefð.Allir áfangar eru kenndir bæði á haust- og vorönn.
Nám á 2., 3. og 4. önn er lánshæft hjá LÍN. Umsækjendur er hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins um lánshæfi.
Frumgreinanám HR
- Skemmtilegt og krefjandi nám eru einkunnarorð nemenda
- Gott og hagnýtt undirbúningsnám
- Lýkur með Frumgreinaprófi sem veitir rétt til háskólanáms
- Nemendur með Frumgreinapróf geta sótt um nám við allar deildir HR og aðra háskóla jafnt innanlands sem utan
- Fyrsti valkostur fólks úr atvinnulífinu
- Metnaðarfullir nemendur og kennarar
Dagskóli
Haustið 2010 er boðið upp á 2., 3. og 4. önn í dagskóla.
Kostir dagskóla: Þessi námsleið hentar þeim sem vilja taka mikið nám á stuttum tíma. Sjá nánar hér.
Ummæli nemenda í dagskóla:
Skemmtilegt og krefjandi nám í bekkjarkerfi. Fólk á öllum aldri. Gott aðgengi að kennurum.
Fjarnám
Haustið 2010 er boðið upp á fjarnám á 1.önn
Kostir fjarnáms: Þessi námsleið hentar þeim sem vegna búsetu eða vinnu hafa ekki tök á því að mæta í kennslustundir. Sjá nánar hér.
Ummæli nemenda í fjarnámi:
Ég kynntist frábæru fólki sem er með mér í fjarnáminu og höfum við reglulega samband og reynum að hittast og læra saman. Ég tel að staðarnámslotan sé mjög góður og skemmtilegur undirbúningur að góðu samstarfi við kennara og aðra nemendur.
FrumgreinaMennt er í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða.
Nánari upplýsingar
Málfríður Þórarinsdóttir, forstöðumaður frumgreina, malfrid@ru.is
Bryndís Bjarnadóttir, þjónustufulltrúi, bryndisb@ru.is

