frumgreinamennt

Frumgreinar


 

Frumgreinanám er góður valkostur fyrir fólk úr atvinnulífinu sem þarf frekari undirbúning til áframhaldandi náms á háskólastigi.  Opnað hefur verið fyrir umsóknir um skólavist haustið 2010. 

Áhugaverðir tenglar - hnötturinn 1

Frumgreinanám hentar líka stúdentum sem þurfa að bæta við sig námi í stærðfræði og raungreinum.
Frumgreinanám Háskólans í Reykjavík byggir á rúmlega 40 ára gamalli hefð.Allir áfangar eru kenndir bæði á haust- og vorönn.
Nám á 2., 3. og 4. önn er lánshæft hjá LÍN. Umsækjendur er hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins um lánshæfi.

Frumgreinanám HR

  • Skemmtilegt og krefjandi nám eru einkunnarorð nemenda
  • Gott og hagnýtt undirbúningsnám
  • Lýkur með Frumgreinaprófi sem veitir rétt til háskólanáms
  • Nemendur með Frumgreinapróf geta sótt um nám við allar deildir HR og aðra háskóla jafnt innanlands sem utan
  • Fyrsti valkostur fólks úr atvinnulífinu
  • Metnaðarfullir nemendur og kennarar

Dagskóli

Haustið 2010 er boðið upp á 2., 3. og 4. önn í dagskóla.

Kostir dagskóla: Þessi námsleið hentar þeim sem vilja taka mikið nám á stuttum tíma. Sjá nánar hér.

Ummæli nemenda í dagskóla:
Skemmtilegt og krefjandi nám í bekkjarkerfi. Fólk á öllum aldri. Gott aðgengi að kennurum.

Fjarnám

Haustið 2010 er boðið upp á fjarnám á 1.önn

Kostir fjarnáms: Þessi námsleið hentar þeim sem vegna búsetu eða vinnu hafa ekki tök á því að mæta í kennslustundir. Sjá nánar hér.

Ummæli nemenda í fjarnámi:
Ég kynntist frábæru fólki sem er með mér í fjarnáminu og höfum við reglulega samband og reynum að hittast og læra saman. Ég tel að staðarnámslotan sé mjög góður og skemmtilegur undirbúningur að góðu samstarfi við kennara og aðra nemendur.

FrumgreinaMennt er í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða.

Nánari upplýsingar

Málfríður Þórarinsdóttir, forstöðumaður frumgreina, malfrid@ru.is 
Bryndís Bjarnadóttir, þjónustufulltrúi, bryndisb@ru.is  


Umsagnir nemenda

Ragnhildur-Vigfusdottir

"Opni háskólinn í HR er einn af uppáhaldsstöðunum mínum og ég vildi verja miklu meiri tíma þar. Sú fræðsla sem ég hef sótt þangað hefur verið góð; fróðleg, fagleg og skemmtileg. Ekki er verra hvað það er þægilegt að eiga samskipti við starfsmenn Opna Háskólans sem vilja allt fyrir mann gera og eru óþrjótandi að koma með góðar og gagnlegar tillögur um fræðslu fyrir starfsmenn jafnt sem stjórnendur."

- Ragnhildur Vigfúsdóttir, deildarstjóri starfsþróunar hjá Landsvirkjun

 

Sjá meira










  • Háskólagrunnur - frumgreinar

    Markvisst  og metnaðarfullt nám fyrir þá sem stefna að háskólanámi en hafa ekki tilskilinn undirbúning. Opið er fyrir umsóknir.


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica