Greiðsluskilmálar

Þátttakandi sem er skráður á námskeið en hættir við að sitja það skal tilkynna forföll með skriflegum hætti til Opna háskólans með tveggja vikna fyrirvara. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald skrái þátttakandi sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeið hefst.

Láist þátttakanda að skrá sig úr námskeiðinu áður en það hefst eða hættir eftir að námskeið er hafið áskilur Opni háskólinn sér rétt til þess að innheimta allt að 100% af námskeiðsgjaldi.

Námskeiðsgjald er í öllum tilvikum innheimt að fullu ef eitt eða fleiri eftirfarandi atriða eiga við:

  • Biðlisti er á námskeið.
  • Námskeið er hafið og fjöldi þátttakenda nær einungis lágmarksfjölda þátttakenda.
  • Um styttri námskeið er að ræða.

 

Nauðsynlegt er að tilkynna forföll með allt að mánaðar fyrirvara þegar um lengri nám/námskeið er að ræða.
Upplýsingar um nauðsynlegan fyrirvara, skráningargjald og fleira er að finna í lýsingum um hvert námskeið fyrir sig.

GREIÐSLUTILHÖGUN


Í byrjun hvers námskeiðs eru sendir út greiðsluseðlar til þátttakenda. Einnig bjóðum við upp raðgreiðslur á Visa- og Mastercardkortum. Ef  óskað er eftir raðgreiðslu þarf greiðandi að hafa samband við fjármálasvið Háskólans í Reykjavík í síma 599 6200.

FYRIRSPURNIR

Ef eitthvað í þessum skilmálum er óskýrt eða ef þú hefur einhverar spurningar þá bendum við þér á að hafa samband við einhvern starfsmanna Opins háskóla, með tölvupósti á opnihaskolinn@ru.iseða í síma 599 6360.

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica