Viðskiptasiðfræði og samfélagsleg ábyrgð

Almennt námskeið - opið öllum




Fyrir hverja?


Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja afla sér grundvallarþekkingar um viðskiptasiðfræði (VS) og samfélagslega ábyrgð (SÁ) fyrirtækja. Ekki er gerð krafa um menntun eða þekkingu á málefninu.

Í lok námskeiðs eiga þátttakendur að:


- Þekkja hugmyndafræðilegan bakgrunn VS og SÁ

- Vita hverjar eru helstu aðferðir VS

- Hafa kynnst dæmum um hvernig fyrirtæki geta skipulagt SÁ


Lesefni og verkefni


Þátttakendur fá sendar greinar um VS og SÁ

- Þátttakendur spreyta sig á einstaklings- og hópverkefnum.

 

Leiðbeinandi


Ketill B. Magnússon, mannauðsstjóri Skipta.

MBA – ESADE, Barcelona 

MA Heimspeki – sérhæfing í viðskiptasiðfræði

Rekstrar- og viðskiptanám – diploma EHÍ

Stundarkennsla við  Háskólann í Reykjavík síðan 2001

Ráðgjafi - stjórnendaráðgjöf í 5 ár 

Stjórnarseta í fyrirtækjum og félögum

Formaður Flóru, félags mannauðsstjóra á Íslandi

Mannauðsstjóri Skipta hf. 


Kennslufyrirkomulag

Dagsetning væntanleg!

Námskeiðið er 6 klukkustundir.

Staður: Námskeiðið fer fram í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Verð: 32.000,- kr.* (Innifalið í verði er síðdegiskaffi).


 

Nánari upplýsingar veitir:


Hrafnhildur Sigurðardóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6358
Tölvupóstur: hrafnhildursig@hr.is
www.opnihaskolinn.is


Forföll og innheimta námskeiðsgjalds*


Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega. Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica