Níu klukkustunda námskeið þar sem farið er yfir helstu þætti viðmótshönnunar.
Námskeiðslýsing:
Kynning á helstu þáttum viðmótshönnunar - farið er yfir helstu hönnunarstaðla og hvernig smíða skal skiljanleg ferli.
Í framhaldinu er fjallað um nytsemi (usability), hvað er nytsemi og hvers vegna er mikilvægt að huga að nytsemi? Fjallað er um helstu reglur og staðla í því samhengi. Framkvæmd prófana er skoðuð og leitast við að svara því hvers vegna það er mikilvægt að prófa. Einnig er fjallað um aðgengismál (accessibility), hvers vegna skiptir aðgengi fyrir alla máli? Farið er yfir alþjóðlega staðla og það sem þarf að huga að.
Markmið:
Að fá góða yfirsýn yfir helstu atriði sem varða hönnun viðmóts og hegðun notenda. Grunnskilningur á helstu stöðlum í nytsemi og aðgengi.
Ávinningur:
Að kynnast því sem helst þarf að huga að hvað varðar viðmót og notendur. Öðlast skilning á helstu stöðlum í nytsemi og aðgengi til að halda úti betri vefjum.
Leiðbeinendur:
Margrét Dóra Ragnarsdóttir, viðmótshönnuður og Jóhanna Símonardóttir, ráðgjafi hjá Sjá ehf.
Kennslufyrirkomulag:
Kennsla fer fram í Opna háskólanum í HR á mánudögum og miðvikudögum 7., 9. og 14. mars 2011 kl. 16:15-19:15.
Námskeiðið er 9 klukkustundir.
Verð kr.: 31.500.-
Nánari upplýsingar veitir:

Auður Hrefna Guðmundsdóttir
Sími: 599 63 68
Netfang: audurhg@ru.is
*Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

