Grunnatriði verkefnastjórnunar

Að skilgreina umfang, innihald og markmið verkefna ásamt gerð verkefnisáætlunar.

 

SKRÁNING HÉR

 

Námskeiðslýsing:


Í námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði í aðferðafræði verkefnastjórnunar.
Unnið er með skilgreiningu á umfangi, innihaldi og markmiðum verkefna, niðurbrot verkefna í verkþætti, grunnatriði verkefnaferilsins, uppbyggingu verkefnaáætlunar, stöðugreiningar og vörður. Auk þess er unnið með hagsmunaaðila- og áhættugreiningar.

Fjallað verður um einkenni árangursríkra verkefna og hvað veldur því að verkefni misheppnast. Farið er yfir hlutverk verkefnastjóra, bakhjarla og liðsmanna, skoðuð lykilatriði í hópárangri, fundarstjórnun og eftirliti með framgangi verkefna.  

Á námskeiðinu vinna þátttakendur í hópum með verkefni eins þátttakenda. Verkefnið er brotið niður og sett upp í verkefnisáætlun sem viðkomandi þátttakandi fær með sér heim. Á þessu námskeiði er ekki fjallað um tölvuforrit.

 

Leiðbeinandi:

 

Þóra Valný Yngvadóttir er verkefnastjóri hjá Landsbankanum og hefur víðtæka reynslu af stjórnun og ráðgjöf. Þóra Valný lauk BA prófi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun frá Oxford Brookes University 1994 og hefur síðan bætt við sig þekkingu m.a. með löggildingarprófum í fjármálaráðgjöf, verðbréfaviðskiptum og stjórnun.

 

Kennslufyrirkomulag:

 

Staður: Námskeiðið verður haldið í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Stund: mánudaginn 2. og miðvikudaginn 4. apríl frá kl. 13.00-17.00.

Lengd: Námskeiðið er 8 klukkustundir.

 

Verð: 38.000,- kr*

 

SKRÁNING HÉR


Nánari upplýsingar veitir:


SoleySóley Jónsdóttir
Verkefnastjóri
S. 599 6341
Tölvupóstur: soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is

 

*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

 




Einstaklingar





Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica