Tímastjórnun

Að ná betri árangri í starfi snýst ekki aðeins um það að vinna hraðar eða að koma meiru í verk.

 

SKRÁNING HÉR*

 Fullt er orðið á námskeiðið 8. febrúar en opið fyrir skráningu á sama námskeið 22. febrúar

 

Það gerum við með því að veita mikilvægustu verkefnum á hverjum tíma athygli okkar, orku og forgang – og ljúka þeim á þeim tíma sem við höfum til umráða.

Námskeiðslýsing:


Farið er yfir ráð sem hjálpa til við að koma mikilvægustu verkefnum í framkvæmd og nýta tímann sem allra best.

Námskeiðið byggir á þriggja klst. fyrirlestri og verkefnum, þar sem strax er komið að efninu. Aðalatriðin eru:

  • Tími
  • Tímastjórnun
  • Yfirsýn og markmið
  • Forgangsröðun
  • Skipulag
  • Ákveðni og svegjanleiki

 

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur breyti vinnubrögðum sínum og nái árangri með því að nýta tíma sinn betur.

Fyrir hverja?

Námskeiðið er opið öllum.


 

Leiðbeinandi: 

Þóra Valný Yngvadóttir er verkefnastjóri hjá Landsbankanum og hefur víðtæka reynslu af stjórnun og ráðgjöf. Þóra Valný lauk BA prófi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun frá Oxford Brookes University 1994 og hefur síðan bætt við sig þekkingu m.a. með löggildingarprófum í fjármálaráðgjöf, verðbréfaviðskiptum og stjórnun.


Kennslufyrirkomulag: 

Kennsla fer fram í Opna háskólanum í HR, Menntavegi 1, miðvikudaginn 22. febrúar frá kl. 13.30-16.30.

Á námskeiðinu taka þátttakendur virkan þátt í umræðum og verkefnum.

Verð: 18.000.- kr*

 

SKRÁNING HÉR*

 *Fullt er orðið á námskeiðið 8. febrúar en opið fyrir skráningu á sama námskeið 22. febrúar


Nánari upplýsingar veitir:


SoleySóley Jónsdóttir
Verkefnastjóri
Sími: 599 6341
Tölvupóstur: soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is

*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

 




Einstaklingar





Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica