Þjónustuþjálfun fyrir viðskiptastjóra og þjónustufulltrúa

Námskeiðið er ætlað framlínustarfsmönnum og fjallar um áskoranir þær sem felast í því að veita framúrskarandi þjónustu. Á námskeiðinu er fjallað um hvað þarf til ef ná á samkeppnisforskoti í þjónustu. Fjallað almennt um eðli þjónustu og áskoranir tengdar því. Kynntar og æfðar leiðir til að taka á erfiðum viðskiptavinum, meðhöndlun kvartana, úrslausn og eftirfylgni. Mismunandi dreifileiðir við þjónustuveitingu og sérstaða þeirra (sími, tölvupóstur, heimsókn).


Ávinningur

Að námskeiðinu loknu á þátttakandi að hafa:

 

Öðlast skilning á hlutverki sínu í að veita framúrskarandi þjónustu.

Tileinkað sér leiðir til að bæta þjónustuveitinguna.

Þekkingu á því hvaða þættir skipta mestu máli í þjónustuveitingunni. 

Öðlast innsýn í mikilvægi þess að hópurinn vinni saman að settu marki í þjónustuveitingunni. 

Lært hvernig hægt best er að taka á erfiðum viðskiptavinum.

 

Leiðbeinandi

Kristinn Tryggvi Gunnarsson er eigandi og stjórnunarráðgjafi hjá Expectus, stjórnendaþjálfari við Opna háskólann og stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og lauk B.S. prófi í stjórnun og stefnumótun frá University of North Carolina og MBA prófi frá University of Georgia. Kristinn hefur starfað með fjölmörgum af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, markaðs- og þjónustumála. Hann hefur mikla reynslu af lóðsun og stjórnendaþjálfun og hefur auk réttinda frá Franklin Covey lokið þjálfun hjá Project Adventure, Corporate Lifecycles Inc, Lego Serious Play, Blue Ocean Strategy, Corporate Coach University og SHL.

Kristinn hefur kennt þjónustustjórnun við HR frá árinu 2003, starfaði sjö ár sem útibússtjóri hjá Íslandsbanka og 6 ár sem ráðgjafi og stjórnandi hjá Capacent og stýrði m.a. samþættingu ráðgjafa og rannsókna á sviði þjónustumála.

 

Kennslufyrirkomulag

Námskeiðið verður kennt í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, þriðjudaginn 18. október frá kl. 8.30-16.30

Lengd: 8 klukkustundir

Verð: 39.900,- kr*

 

SKRÁNING HÉR

 

Nánari upplýsingar

SoleySóley Jónsdóttir
Verkefnafulltrúi
S. 599 6341
soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is

 

*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica