Námskeiðið er ætlað stjórnendum og fjallar um hlutverk stjórnandans í því að tryggja að veitt sé framúrskarandi þjónusta.
Á námskeiðinu er fjallað um hvað þarf til ef ná á samkeppnisforskoti í þjónustu. Stuðst er við kenningar Grönfeldt og Strother („Service Leadership") og sérstaklega verður skoðað líkan Zeithaml um þjónustugjána. Fjallað almennt um eðli þjónustu og áskoranir tengdar því. Dregið fram mikilvægi þjónustuloforðsins og það skoðað í samhengi við þjónustuferlana og þjónustuveitinguna. Nýjustu straumar og stefnur í þjónustumælingum og mikilvægi stöðugra endurbóta. Fyrirtækjabragur – hvernig fyrirtæki innleiða gildi og brag sem byggir upp þjónustuforskot. Þjónusturáðarnir 8 kynntir og rýndir m.t.t.viðkomandi fyrirtækis.
Ávinningur
Að námskeiðinu loknu á þátttakandi að hafa :
Öðlast skilning á hlutverki sínu í að tryggja framúrskarandi þjónustuveitingu.
Bætt færni sína í notkun á þjónustumælingum.
Öðlast skilning á mikilvægi stöðugra endurbóta.
Eflt þekkingu á helstu þáttum þjónustustjórnunar.
Öðlast innsýn í mikilvægi þess að hópurinn vinni saman að settu marki í þjónustuveitingunni.
Leiðbeinandi
Kristinn Tryggvi Gunnarsson er eigandi og stjórnunarráðgjafi hjá Expectus, stjórnendaþjálfari við Opna háskólann og stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og lauk B.S. prófi í stjórnun og stefnumótun frá University of North Carolina og MBA prófi frá University of Georgia. Kristinn hefur starfað með fjölmörgum af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, markaðs- og þjónustumála. Hann hefur mikla reynslu af lóðsun og stjórnendaþjálfun og hefur auk réttinda frá Franklin Covey lokið þjálfun hjá Project Adventure, Corporate Lifecycles Inc, Lego Serious Play, Blue Ocean Strategy, Corporate Coach University og SHL.
Kristinn hefur kennt þjónustustjórnun við HR frá árinu 2003, starfaði sjö ár sem útibússtjóri hjá Íslandsbanka og 6 ár sem ráðgjafi og stjórnandi hjá Capacent og stýrði m.a. samþættingu ráðgjafa og rannsókna á sviði þjónustumála.
Kennslufyrirkomulag
Námskeiðið verður kennt í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, þriðjudaginn 8. nóvember frá kl. 8.30-16.30
Lengd: 8 klukkustundir
Verð: 39.900,- kr*
Nánari upplýsingar
Sóley Jónsdóttir
Verkefnafulltrúi
S. 599 6341
soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

