Grunnatriði í C++ forritunarmálinu
Efni námskeiðs
Í þessu námskeiði eru tekin fyrir grunnatriði í forritun með notkun C++ forritunarmálsins.
Eftirfarandi efni er kynnt í námskeiðinu:
Breytur og reiknivirkjar
If setningar og switch skipanir
Rökvirkjar og segðir
Lykkjur
Föll
Texti og strengir
Fylki
Hlutir og klasar
Hlutbundin forritun
Erfðir
Yfirskrift virkja
Tengdir listar
Uppbygging námskeiðs:
Námskeiðið er fjarnámsnámskeið. Fjarkennsla hefur nokkra ókosti en einnig kosti umfram staðarnám. Markmiðið með uppbyggingu þessa námskeiðs er að nýta kosti sem fjarkennslu sem ekki bjóðast í staðarnámi. Þannig er sveigjanlegt á hvaða hraða nemendur taka námskeiðið og hversu djúpt nemendur taka efnið. Sumir sem taka námskeiðið eru að því til að kynnast C++ án þess að taka próf, en aðrir vilja taka próf.
Námskeiðið er byggt upp þannig að námi er skipt upp í lotur. Gert er ráð fryrir að nemandi byrji á lotu 1, hlusti á upptökur og prófi að framkvæma það sem fram kemur á upptökunum. Að því loknu geri þeir verkefni viðkomandi lotu og skili síðan verkefnum úr lotunni. Nemandi byrjar á lotu 1, tekur síðan lotu 2 o.s.frv. Í sumum lotum er boðið upp á að taka efni á ítarlegri hátt með því t.d. að taka efni í “hliðarlotu”, þannig getur nemandi t.d. tekið lotu 2b sem fjallar þá um svipað efni og lota 2 en farið ítarlegar í efni lotunnar. Ekki er nauðsynlegt að taka hliðarlotur til að halda áfram í næstu lotu á eftir, en mælt er með að nemendur sem ætla að
taka próf í námskiðinu taki einnig hliðarlotur. Þegar nemandi hefur lokið efni námskeiðs getur hann tekið próf í samráði við kennara námskeiðs.
Efni sem hér er farið í samsvarar efni í námskeiðinu „Forritun“ sem kennt er í tölvunarfræðideild HR en einnig er farið í efni úr námskeiðinu „Gagnaskipan“ að hluta.
Námskeiðið var opnað 29. ágúst og verður lokað í byrjun desember. Þar eð námskeiðið er með sveigjanlegu sniði þannig að ekki er nauðsynlegt fyrir nemendur að byrja um leið og námskeiðið er opnað.
Fyrirkomulag:
Leiðbeinandi er Hallgrímur Arnalds, kennari við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Lengd: 40 klst.
Staðsetning: námskeiðið er kennt í fjarnámi.
Verð: 81.000,- kr*
Nánari upplýsingar
Sóley Jónsdóttir
Verkefnafulltrúi
S. 599 6341
soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

