Sköpunargleði

 

SKRÁNING Á NÁMSKEIÐIÐ HÉR


Tilgangur námskeiðs


Að þátttakendur kynnist aðferðafræði við að auka sköpunargleði innan fyrirtækjanna sem þeir starfa hjá og hrindi hugmyndum sínum í framkvæmd.

 

Um námskeiðið


Besta leiðin til að fá góða hugmynd er að fá margar. Hugmyndir spretta í frjóum jarðvegi þar sem þær fá þá næringu og umhyggju sem þær þurfa til að spíra og síðar blómstra. Tilgangur námskeiðs í  sköpunargleði er að gera þátttakendur að hugmyndabændum sem fá hugmyndir, geta greint úr þeim og hlúð að þeim bestu svo þær vaxi og dafni.

Námskeiðið tekur til dæmis á samskiptum innan fyrirtækja og stofnana, hvernig hömlum sköpunargleði er rutt úr vegi, hvað skopskyn og leikur skiptir miklu máli og hvernig megi afla hugmyndum fylgi meðal fólks. Gleðin verður við stjórnvölinn, hugmyndaflæðið virkjað og miðað er að því að í enda námskeiðsins geti fólk snúið aftur til vinnu með nýja hugsun
sköpunargleðinnar og jafnvel raunhæf og hagnýt verkefni til að hrinda í framkvæmd, því sköpunargleði er forsenda nýsköpunar.

 

Kröfur til þátttakenda


Virk þátttaka er grundvallaratriði og viljugleiki til að stíga út fyrir rammann í hugsun og jafnvel hegðun. Unnið er út frá þeim
forsendum að sköpunargleði verði ekki virk í tómarúmi, heldur í samskiptum við aðra, á krossgötum mismunandi menningar, reynslu og þekkingar.


Hæfniviðmið


Við lok námskeiðsins ættu þátttakendur að geta:

· Fjallað um mikilvægi sköpunargleði og skapandi hugsunar
· Þekkja helstu kjarnahugmyndir sköpunargleði
· Þekkja tálmanir sköpunargleði og hvernig megi ryðja þeim úr vegi
· Aflað hugmyndum sínum fylgi jafnvel þrátt fyrir erfiðar hindranir
· Bryddað upp á hugbrotum
· Komið hreyfingu á hlutina, fagnað breytingum og fengið aðra til þess líka
· Komið hugarregni af stað og stýrt því
· Gert grunnhreyfingar í jakkafatajóga
· Verið hamingjusamari


Leiðbeinandi


Haraldur U. Diego er viðskiptafræðingur, en opinbert starfsheiti hans er hugmyndabóndi. Sem slíkur dreifir hann hugmyndafræjum, hlúir að þeim, vökvar og uppsker eins og hann sáir. Hann hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um
sköpunargleði og hvernig hana megi efla innan fyrirtækja.

 

Kennslufyrirkomulag


Staðsetning: Námskeiðið fer fram í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Stund: Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 9. október frá kl. 9-12 og miðvikudaginn 10. apríl frá kl. 13-16.

Verð: 29.500,- kr. (Innifalið í verði er síðdegiskaffi)

 

SKRÁNING Á NÁMSKEIÐIÐ HÉR

 

Nánari upplýsingar


Hrafnhildur Sigurðardóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6358
Tölvupóstur: hrafnhildursig@hr.is
www.opnihaskolinn.is

Forföll og innheimta námskeiðsgjalds


Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála


 










Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica