Skattskil rekstraraðila

Hagnýtt og vinsælt námskeið í skattskilum.

 

 SKRÁNING HÉR

 

Námskeiðslýsing:

Á námskeiðinu verður farið yfir hvað einstaklingar þurfa að hafa í huga við útfyllingu framtals og  rekstrarskýrslunnar svo sem:

  • Rekstrartekjur
  • Reiknað endurgjald  – hvernig það er fundið og við hvað átt þú að miða þig við
  • Mótframlag í lífeyrissjóð og önnur launatengd gjöld
  • Frádrættir – hvað má nota sem frádrátt
  • Tap frá fyrra ári  - hverni er hægt að yfrifæra tap frá fyrra ári til lækkunnar skatta
  • Niðurfærslu birgða ef einhverjar


Markmið:

Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að geta fyllt út einfaldari gerð af rekstraryfirliti eða rekstrarskýrslu.


Fyrir hverja?

Námskeið fyrir þá sem þurfa að fylla út rekstraryfirlit (4.10) vegna tekna allt að 500 þúsundum eða rekstrarskýrslu (4.11) vegna tekna frá 500 þúsund að 20 miljónum króna með skattframtali.


Kennslufyrirkomulag:

Kennsla fer fram með sýnidæmum og verkefnum. Kennslan fer fram í Háskólanum í Reykjavík mánudaginn 26. mars kl. 16:30-19:30. 

Leiðbeinandi er Lúðvík Þráinsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte.


Verð: 13.900.- kr.


 SKRÁNING HÉR

 

Nánari upplýsingar veitir:


SoleySóley Jónsdóttir
verkefnastjóri
Sími: 599 6341
soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is

*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica