Hagnýtt og vinsælt námskeið í skattskilum.
- Keyptir þú íbúð á árinu 2011?
- Endurfjármagnaðir þú íbúðarlánin þín?
- Er íbúðarlánið þitt hjá bankastofnun?
- Keyptir þú eða seldir hlutabréf á árinu?
- Er skattskýrslan orðin of flókin?
- Lætur þú endurskoðanda gera skattskýrsluna þína?
- Vilt þú geta gert skattskýrsluna þína sjálf/ur?
Námskeiðslýsing:
Á námskeiðinu er farið yfir allt það helsta sem þarf að hafa í huga þegar skattframtal er gert. Farið verður yfir ýmsar hliðar skattskila einstaklinga, svo sem íbúðarlán, hlutabréfaviðskipti og önnur verðbréfaviðskipti, hvernig gera skuli grein fyrir eignum og skuldum, dagpeningum og ökutækjastyrkjum ásamt ýmsu fleiru.
Fyrir hverja?
Námskeiðið er opið öllum.
Kennslufyrirkomulag:
Kennsla fer fram með sýnidæmum og verkefnum. Kennslan fer fram í Háskólanum í Reykjavík mánudaginn 19. mars 2012 kl. 16:30-19:30.
Leiðbeinandi er Lúðvík Þráinsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte.
Verð: 13.900.- kr.
Nánari upplýsingar veitir:
Sóley Jónsdóttir
verkefnastjóri
Sími: 599 6341
soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

