Hagnýtt og spennandi námskeið fyrir alla þá sem vilja auka færni sína í samningagerð og samningaviðræðum.
Námskeiðslýsing:
Fagmennska í samningatækni hjálpar fólki til að ná hámarksárangri, bæði í einkalífi og í starfi. Í námskeiðinu er fjallað um lykilatriði árangursríkrar samningamennsku og samvinnu til að komast að góðu samkomulagi. Með fyrirlestrum, umræðum,
æfingum o.fl. munu nemendur afla sér þekkingar og færni í samningatækni. Á námskeiðinu er lögð sérstök áhersla á gagnlega hluti sem nýtast í raunverulegum samningaviðræðum. Þ.á.m. er skoðað hvernig best er að haga undirbúningi og hvaða aðferðir stuðla að win-win lausn.
Ávinningur
- Að nemendur átti sig á mikilvægi samningaviðræðna jafnt í lífi sem og starfi
- Að nemendur læri að þekkja og tileinka sér helstu grundvallaratriði innan samningatækni
- Að nemendur þekki ferli samningaviðræðna
- Að nemendur kynnist sínum eigin samningastíl
Kennslufyrirkomulag:
Námskeiðið fer fram þriðjudaginn 27. mars frá kl. 8.30-16.30 í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1.
Námskeiðið er 8 klukkustundir.
Verð: 40.000,- kr* (Innifalið í verði er morgunkaffi, léttur hádegisverður og síðdegishressing).
Leiðbeinandi:
Sigurður Ragnarsson starfar við kennslu og fræðslu og kennir m.a. við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst.
Sérsvið hans eru leiðtogafræði, samningatækni og markaðsfræði.
Nánari upplýsingar veitir:
Sóley Jónsdóttir
Verkefnastjóri
Sími: 599 6341
Tölvupóstur: soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is
Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

