Samningatækni - framhaldsnámskeið

Unnið er að lausnum sem skila eiga sameiginlegum ávinningi beggja samningsaðila




Námskeiðslýsing

 

Framhaldsnámskeið í samningatækni þar sem lögð er sérstök áhersla á það stig samningamennsku þar sem samingsaðilar vinna saman að lausnum sem eiga að skila sameiginlegum ávinningi.  Í því ljósi er meðal annars fjallað um faglega ákvarðanatöku.  Ennfremur er farið yfir traust og siðferði í samningamennsku.  Tekin eru fyrir fleiri atriði eins og:  Er skynsamlegt að setja fram fyrsta boð eða bíða eftir að sá sem samið er við geri það?  Að lokum verður skoðað hvernig fagleg samningamennska tengist leiðtogamennsku. Með fyrirlestrum, umræðum, æfingum og fleiri hagnýtum aðferðum munu nemendur afla sér þekkingar og færni í þessum þáttum samningatækninnar.  Meginmarkmið námskeiðsins er að það sé hagnýtt og því þarf að fara vel í fyrrnefnda þætti, sem þýðir meðal annars að skoðaðir verða þættir eins og virk hlustun og þáttur skapandi nálgunar í ákvarðanatöku. 

 

Ávinningur

  •  Að nemendur átti sig á mikilvægi faglegrar ákvarðanatöku í samningamennsku
  • Að nemendur læri að þekkja mikilvægi trausts í samningamennsku
  • Að nemendur þekki hvaða áhrif siðferði hefur á samningatækni
  • Að nemendur þekki hvernig má tileinka sér faglega samningatækni


Kennslufyrirkomulag

 

Staður: Námskeiðið fer fram í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Stund: Þriðjudagurinn 28. febrúar frá kl. 8.30-16.30.

Lengd: Námskeiðið er 8 klukkustundir.

Verð: 39.000,- kr* (Innifalið í verði er morgunkaffi, léttur hádegisverður og síðdegishressing).

 

 

 

Leiðbeinandi

 

Sigurður Ragnarsson starfar við kennslu og fræðslu og kennir m.a. við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst.
Sérsvið hans eru leiðtogafræði, samningatækni og markaðsfræði.

 


Nánari upplýsingar veitir:


Hrafnhildur Sigurðardóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6358
Tölvupóstur: hrafnhildursig@hr.is
www.opnihaskolinn.is

*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica