Opni háskólinn býður upp á 4 klst grunnnámskeið í Outlook 2010. Námskeiðið er ætlað byrjendum eða þeim sem vilja kynna sér breytingar frá fyrri útgáfum.
Námskeiðslýsing
Kennt er á Outlook 2010 og er námskeiðið ætlað byrjendum í notkun Outlook og þeim sem vilja kynna sér breytingar frá fyrri útgáfum.
Ætlast er til þess að þátttakendur séu nokkuð tölvuvanir og þekki til notkunar á póstkerfum. Farið verður yfir notkun á Outlook 2010 í fyrirtækjaumhverfi. Kynntar verða leiðir til þess að spara tíma, einfalda vinnu og alla almenna skipulagningu vinnu og einkalífs.
Í lok námskeiðs ættu þátttakendur að vera færir um:
Að flokka tölvupóst handvirkt og sjálfvirkt
Að stofna tengiliði og halda utanum tengiliðaskrá (Contacts)
Að setja upp póstlista til dreifingar (Contact Group)
Að búa til sjálfvirkar undirskriftir
Að búa til sjálfvirk svör við tölvupósti (Out of office reply)
Að bæta við viðhengjum til sendinga
Að stilla og nota dagatalið á skilvirkan máta
Að nota dagbók og bóka fundi
Kennslufyrirkomulag
Námskeiðið fer fram fimmtudaginn 15. mars 2012 frá kl. 9-13 í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1.
Kennsla fer fram í tölvustofu.
Lengd námskeiðs: 4 klukkustundir.
Kennt er á Outlook 2010.
Verð: 20.000,- kr.
Leiðbeinandi er Arnar Egilsson, þjónustustjóri í Tölvu- og tæknideild Háskólans í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir:
Sóley Jónsdóttir
Verkefnastjóri
Sími: 599 6341
Tölvupóstur: soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is
Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

