Nýleg rannsókn Capacent hér á landi sýnir fram á að fyrirtæki kjósa í auknum mæli að fjárfesta í markaðsstarfi á netinu, ýmist á kostnað annarra fjölmiðla eða sem hrein viðbót. Þetta er einnig raunin víða erlendis. Margar leiðir eru í boði og áskoranirnar sömuleiðis. Gunnar Thorberg Sigurðsson, eigandi fyrirtækisins Kapall markaðsráðgjöf, er þaulreyndur á þessu sviði og mun á námskeiðinu fara yfir það hvers vegna fyrirtæki kjósa að fara þessa leið, hvaða möguleikar eru fyrir hendi og að hverju þarf að huga.
Þátttakendur fá m.a. svör við spurningum á borð við;
- Hvernig getur skipulagt markaðsstarf á netinu stutt við eða stuðlað að vexti fyrirtækja?
- Hvernig er best að standa að innleiðingu á nýrri (eða endurhönnun) vefsíðu?
- Hvernig má laða að nýja viðskiptavini inn á heimasíðuna?
- Hvernig er hægt að breyta heimsókn inn á heimasíðu í viðskipti?
- Er hægt að bæta upplifun notenda heimasíðunnar?
- Hvernig má auðvelda aðgang að efni og upplýsingum á heimasíðunni?
- Hvaða vefgreiningartæki henta vel til mælinga á árangri?
- Hvaða leiðir er hægt að fara í markaðssetningu á netinu?
Námskeiðslýsing
Á námskeiðinu Nýmiðlun – Markaðssetning á netinu verður farið í grunnhugtök tengd viðskiptum á netinu, uppbyggingu vefsvæða og markaðssetningu á netinu. Farið er vandlega í gegnum helstu leiðir og nýjungar sem eru boði á þessum vettvangi s.s. markaðssetningu á leitarvélum (SEO), vefborða, rafræn fréttabréf, markaðssetningu á samfélagsvefjum ásamt því hvernig meta og mæla má árangur í viðskiptum og markaðsstarfi á netinu.
Leiðbeinandi
Gunnar Thorberg Sigurðsson, B.Sc. í viðskiptafræði, M.Sc. Management of eBusiness.
Gunnar hefur starfað við markaðssetningu á netinu frá árinu 2002. Hann hefur unnið sem Internet markaðsráðgjafi fyrir fjölda fyrirtækja frá árinu 2005 og er stundakennari við Háskólann í Reykjavík ásamt því að hafa verið markaðsstjóri Já um nokkurra ára skeið. Gunnar á og rekur fyrirtækið Kapall markaðsráðgjöf sem veitir ráðgjöf um markaðsstarf og stefnumótun markaðsstarfs á netinu og uppbyggingu á vefsvæðum.
Kennslufyrirkomulag
Staður: Kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík að Menntavegi 1, 101 Reykjavík.
Stund: Námskeiðið verður kennt í stofu V.110 að einni undantekningu fráskilinni, þ.e. þann 11. apríl en þá fer kennsla fram í stofu M.111. Kennsla fer fram milli kl. 16:30 og 19:30 eftirfarandi daga;
Miðvikudaginn - 28. mars
Mánudaginn - 2. apríl
Miðvikudaginn - 4. apríl
Miðvikudaginn - 11. apríl
Mánudaginn - 16. apríl
Miðvikudaginn - 18. apríl
Mánudaginn - 23. apríl
Lengd: 21 klukkustund (7x3 klst.)
Verð: 82.000.- kr.*
Nánari upplýsingar
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6358
Tölvupóstur: hrafnhildursig@hr.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

