Merking vinnusvæða

16 klst. námskeið um merkingu vinnusvæða. Námskeiðið hentar verkkaupum, hönnuðum og eftirlitsmönnum sem á einn eða annan hátt koma að undirbúningi og framkvæmd vega- og gatnagerðarmannvirkja.

 

SKRÁNING Í NÁMSKEIÐIÐ 16. OG 17. FEBRÚAR 2012 HÉR

 

Námskeiðslýsing:

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi efnisþætti:

1.            Lög og reglugerðir, flokkun vega og gatna, umferðarmerki, flokkun og tegundir, umferðarstjórn.

2.            Vinnusvæðið, umgengnisreglur, framkvæmd, ábyrgð og eftirlit.

3.            Rammareglur um merkingar vinnusvæðis/framkvæmdasvæðis.

4.            Varnar- og merkingarbúnaður, ljósabúnaður, merkjavagnar, vinnutæki og öryggisbúnaður.

5.            Lagnavinna o.fl., leyfisskyldar framkvæmdir á vegsvæðum.

6.            Vinnustaðamerkingar á tveggja til sex akreina vegum og við staðbundna/hreyfanlega vinnu.

7.            Magntaka, kostnaðaráætlanir, gæðaúttektir og févíti.


 Í lok námskeið þreyta þátttakendur próf til réttinda.

 

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að kenna nemendum hönnun og útfærslu á merkingu fyrir almenna umferð í dreifbýli og þéttbýli vegna framkvæmda, þannig að merkingar þessar séu samræmdar, bæði gagnvart starfsmönnum á vinnustað og vegfarendum. 

 

Fyrir hverja?

Námskeiðið er ætlað þeim verkkaupum, hönnuðum, verktökum og eftirlitsmönnum sem á einn eða annan hátt koma að undirbúningi og framkvæmd vega- og gatnagerðarmannvirkja svo og öðrum þeim stofnunum og fyrirtækjum sem vinna að framkvæmdum á eða við vegsvæði.

 

Leiðbeinendur:

Leiðbeinendur námskeiðsins eru Björn Ólafsson og Ingvi Árnason stjórnendur hjá Vegagerðinni og stundakennarar við tækni- og verkfræðideild HR. Jóhann Christiansen kennir einnig  2klst á námskeiðinu.

 

Kennslufyrirkomulag:

Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 16. og föstudaginn 17. febrúar 2012 kl. 8:30 -16:30 í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1.

Námskeiðið er 16 klukkustundir.

Verð: 62.000,- kr. (Innifalið í námskeiðsgjaldi er morgunkaffi, hádegisverður og síðdegiskaffi báða dagana)

 

SKRÁNING Í NÁMSKEIÐIÐ 16. OG 17. FEBRÚAR 2012 HÉR

 

Nánari upplýsingar veitir

 

SoleySóley Jónsdóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6341
Tölvupóstur: soleyjons@ru.is

www.opnihaskolinn.is

 

*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála




Einstaklingar





Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica