FagMennt Opna háskólans býður upp á hagnýtt 8 klst. námskeið um helstu þætti sem þarf að huga að í útflutningi.
Helstu viðfangsefni
- Meginþættir við mótun og framkvæmd útflutnings.
- Uppbygging útflutningsstarfssemi fyrirtækja.
- Alþjóðleg viðskipti ... hvað mætir fyrirtækjum erlendis?
- Menning og viðskipti, viðskiptavenjur.
- Praktísk atriði í viðskiptum erlendis.
Markmið:
- Að auka skilning og þekkingu þátttakenda á uppbyggingu útflutningsstarfsemi fyrirtækja.
- Að auka þekkingu á því hvernig ólík menning og ólíkar viðskiptavenjur hafa áhrif á alþjóðleg viðskipti og samskipti.
- Að þátttakendur nái að tengja efni námskeiðsins við sitt fyrirtæki og þau útflutningstækifæri sem þar er unnið að.
- Að miðla eigin reynslu og læra af öðrum.
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, verkefnum og umræðum.
Kennslufyrirkomulag:
Kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, mánudagana 14. og 21. nóvember frá kl. 9-13.
Nemendum er sett fyrir verkefni 14. nóvember sem þeim ber að leysa fyrir 21. nóvember.
Leiðbeinandi:
Þorgeir Pálsson, stundakennari við viðskiptadeild HR.
Verð kr.: 39.900,-*
Nánari upplýsingar veitir:
Sóley Jónsdóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 63 41
Tölvupóstur: soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

