Listin að leiðbeina - Þjálfun þjálfara




Listin að leiðbeina - Þjálfun þjálfara

 
Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í hagnýtar aðferðir við fræðslu og þjálfun með áherslu á fullorðinsfræðslu (e. Adult learning). Farið verður yfir skipulagningu námskeiða og hvernig góð námskeiðsáætlun lítur út. Kynntar verða ólíkar kennsluaðferðir sem henta ólíkum hópum nemenda þar sem nálgun fólks á nám er mjög mismunandi. Áhersla verður lögð á aðferðir sem miða að því að fá fólk til að vinna í hópum á árangursríkan hátt og hvaða ráð gefast best við að stýra umræðum. Komið verður inn á matsaðferðir sem henta slíkri vinnu s.s. jafningja- og sjálfmat. Ef tími vinnst til er farið dýpra í raundæmavinnu (e.Case) og aðferðin kynnt með það í huga að fólk geti nýtt hana í eigin vinnu.

Í seinni hluta námskeiðsins fá þátttakendur þjálfun í framkomu og ræðumennsku svo þeir komi efni sínu vel til skila. Farið verður í grunnatriði í sterku líkamsmáli, raddbeitingu og skýrri framsögn. Þátttakendum kennd tækni við að flytja textann á áhfrifamikinn hátt hvort sem notaðir eru punktar, skrifaðar ræður eða glærur.

Hæfniviðmið


Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að:

  • Vita hvað einkennir góða námskeiðsáætlun og geta sett upp eina slíka.
  • Geta sett markmið og hæfniviðmið sem henta best þeirri fræðslu og því efni sem þeir miðla.
  • Þekkja til kennslutækni í fullorðinsfræðslu og að hverju þarf að huga við fræðslu og þjálfun starfsfólsks.
  • Þekkja og vera færir um að nota kennsluaðferðir sem hæfa því efni sem þeir miðla.
  • Geta fengið fólk til að taka þátt í umræðum og hópastarfi á árangursríkan hátt.
  • Þekkja og geta notað jafningjamat og sjálfsmat á vinnu nemenda.
  • Vera öruggir í framkomu og ræðumennsku

Leiðbeinendur


Ása Björk Stefánsdóttir, M.Ed. í uppeldis –og kennslufræðum og María Ellingsen, leikkona (BA), blaðamaður og stjórnendaþjálfari


Ása Björk vinnur sem kennsluþjálfari við Háskólann í Reykjavík. Hún hefur undanfarin 10 ár unnið að margvíslegum verkefnum er snúa að kennslu á háskólastigi og aðstoðað kennara við uppbyggingu námskeiða og kennslu. Hún hefur haldið mörg námskeið í kennslutækni, þátttökustjórnun, matsaðferðum o.fl.

Staður: Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík, 2. hæð (Mars-álma)

Tími: Kennt er í 8 klst og dreifist kennslan yfir á tvo daga. Kennt er kl. 9-13 báða dagana

Dagsetning: Mánudaginn 5. og þriðjudaginn 6. mars 2012.

Verð: 39.000 kr. 

 

 

Nánari upplýsingar veitir:


Sóley Jónsdóttir
Verkefnastjóri Opna háskólans
S. 599 6341
Netfang: soleyjons@ru.is

Forföll og innheimta námskeiðsgjalds


Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica