Innri endurskoðun á tímamótum

Námskeið í Innri endurskoðun er í samstarfi við við Félag um innri endurskoðun á Íslandi, þar sem leiðbeinendur eiga sæti í stjórn félagsins.

SKRÁNING HÉR


Námskeiðslýsing:

Félag um innri endurskoðunÁ námskeiðinu verður farið yfir skilgreiningu á innri endurskoðun og þróun fagsins undanfarin ár. Farið verður yfir hvernig alþjóðastaðlar innri endurskoðenda nýtast við uppbyggingu innri endurskoðunardeilda og helstu viðfangsefni. Bent verður á þau atriði sem skipta máli við mat á gæðum innri endurskoðunar og fjallað um ávinning sem þessari starfsemi er ætlað að skila til fyrirtækja/stofnana.

 

Ávinningur:

  • Betri skilningur á eðli innri endurskoðunar.
  • Greina hvaða atriði skipta máli við þróun og uppbyggingu innri endurskoðunar.
  • Upplýsingar um bækur og gögn sem eru mikilvægar við að byggja upp þekkingu á innri endurskoðun.

 

Markmið:

Að þátttakendur fái þekkingu á starfi innri endurskoðanda og starfsemi innri endurskoðunardeilda og þeim atriðum sem skipta máli við að byggja upp innri endurskoðun innan fyrirtækis eða stofnunar.

 

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna að innri endurskoðun og þeim sem vilja byggja upp þekkingu á þessu sviði. 

 

Kennslufyrirkomulag:

Kennsla fer fram í Opna háskólanum í HR, Menntavegi 1, fimmtudaginn 1. mars 2012 kl. 8:30-12:00 og frá kl. 12:30-16:00. Námskeiðið er samtals 7 klukkustundir.

Leiðbeinendur eru Anna Margrét Jóhannesdóttir, stjórnsýslufræðingur og faggiltur innri endurskoðandi (Certified Internal Auditor). Starfar sem verkefnastjóri hjá Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar.
Nanna Huld Aradóttir, viðskiptafræðingur og faggiltur innri endurskoðandi (Certified Internal Auditor). Liðsstjóri áhættuþjónustu Deloitte.

*Aðilar sem hafa sértæka þekkingu á innri endurskoðun geta verið kallaðir til þar sem við á.

Verð: Kr. 32.000

 

SKRÁNING HÉR 


Umsagnir frá þátttakendum um námskeiðið á haustönn 2009:

  • ,,Góðir leiðbeinendur, mikil þekking, góð aðstaða í HR og kurteist starfsfólk."
  • ,,Frábær dæmi um vinnuaðferðir og ferla úr raunveruleikanum."
  • ,,Hnitmiðað og markvisst námskeið."

 

Nánari upplýsingar veitir:

SoleySóley Jónsdóttir
verkefnafulltrúi hjá Opna háskólanum
sími: 599 6341
netfang: soleyjons@ru.is

 

Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála


*Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.




Einstaklingar





Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica