Innra eftirlit - lykilþáttur í árangri fyrirtækja

Vegna mikillar aðsóknar á haustönn 2009:
Spennandi námskeið í samstarfi við við Félag um innri endurskoðun á Íslandi, þar sem leiðbeinendur eiga sæti í stjórn félagsins.

Félag um innri endurskoðunNámskeiðslýsing:

Á námskeiðinu verður fjallað um skilgreiningu á innra eftirliti og  atriði sem skipta máli við uppbyggingu innra eftirlits. Sett verður í samhengi og skilgreint hlutverk og ábyrgð innri endurskoðanda, stjórnar, stjórnenda og almennra starfsmanna við uppbyggingu og vöktun innra eftirlits.

 

Ávinningur:

  • Betri skilningur á innra eftirliti í samhengi við eftirlitsumhverfið.
  • Greina hvaða atriði skipta máli við þróun og uppbyggingu innra eftirlits.
  • Upplýsingar um hvaða bækur og gögn eru mikilvægar til að hafa við hliðsjónar við uppbyggingu á innra eftirliti.

 

Markmið:

Að þátttakendur fái þekkingu á innra eftirliti og það sett í samhengi við mikilvægi góðra stjórnarhátta og áhættustýringar.  

 

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað starfsmönnum og stjórnendum sem vinna við innri endurskoðun og þeim sem bera ábyrgð á uppbyggingu innra eftirlits. Öllum þeim sem vinna að bættu verklagi innan síns fyrirtækis s.s. á sviði fjármála og gæðamála o.fl.

 

Kennslufyrirkomulag:

Kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík 18. og 19. nóvember 2010 kl. 8:30-12:00. Nánari upplýsingar auglýstar síðar. Námskeiðið er samtals 7 klst.

 

Leiðbeinendur eru Anna Margrét Jóhannesdóttir, stjórnsýslufræðingur og faggiltur innri endurskoðandi (Certified Internal Auditor). Starfar sem verkefnastjóri hjá Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar.
Nanna Huld Aradóttir, viðskiptafræðingur og faggiltur innri endurskoðandi (Certified Internal Auditor). Liðsstjóri áhættuþjónustu Deloitte. 

Verð: 29.400.- kr.
*
Aðilar sem sinna innri endurskoðun geta verið kallaðir til þar sem við á.

 

Umsagnir um námskeiðið á haustönn 2009:

  • ,,Góð sýn á stuttum tíma á þessum málefnum."
  • ,,Leiðbeinendur þekkja efnið mjög vel."
  • Hnitmiðuð framsetning námsefnis, hópaverkefni og samræður."

 

Skráðu þig hér!

Nánari upplýsingar veitir:


Auður Guðmundsdóttir

Auður Hrefna Guðmundsdóttir
Sími: 599 63 68
Tölvupóstur: audurhg@ru.is
www.fagmennt.is

 

 

*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.









Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica