Námskeiðslýsing
Sífellt meiri kröfur eru gerðar til stjórnenda að sýna fram á skýran ábata af þeim kostnaði sem settur er í markaðsmál.
Námskeiðið fjallar um hvaða kennitölur eigi að mæla og fylgjast með, en áherslan er á að byggja upp upplýsingamiðaða markaðssetningu byggða á greiningu viðeigandi gagna. Farið verður í undirstöðuatriði í greiningum á neytendahegðun og hvernig hún getur leitt til mælanlegra markmiða í markaðssetningu sem vel er hægt að gera grein fyrir. Námskeiðið kynnir ýmis nauðsynleg tæki og tól og hvernig notkun þeirra er háttað hjá árangursríkum fyrirtækjum. Útskýrt verður hvernig fyrirtæki geta breytt gögnum í verðmæti með því að innleiða greiningar á viðskiptavinum í starfsemi sinni. Fjallað verður um strauma og stefnur í greiningum á viðskiptavinum og hvað þarf til að ná árangri á þessu sviði. Einnig verður fjallað um helstu greiningaraðferðir, verklag við greiningar, greiningarhugbúnað og herferðastjórnun. Sífellt fleiri fyrirtæki eru nú að innleiða greiningar á viðskiptavinum í grunnstarfsemi sinni. Þátttakendur munu fá innsýn í þetta ört vaxandi fag, hvert það stefnir og hvernig árangursrík innleiðing fer fram á Íslandi. Bókin Analytics at Work eftir Thomas H. Davenport og Jeanne G. Harris er innifalin í námskeiðsgjöldum. Einnig gefst þátttakendum færi á að leysa verkefni á þessu sviði í tengslum við fyrirtæki sín og fá endurgjöf frá leiðbeinendum.
Dagur 1
1. Markaðssetning sem fjárfesting (VS)
2. Neytendahegðun (nokkur raundæmi) – greiningar og markaðssamskipti (VS)
3. Nýjustu straumar og stefnur í greiningum (customer analytics) (BBJ)
4. Undirstöðuaðtriði greininga, DELTA skrefin og undirbúningur fyrir verkefni (BBJ)
Dagur 2
5. Lærdómsfyrirtæki: Tölfræðileg greining og gagnanám (BBJ)
6. Greiningarferlið, helstu aðferðir og greiningartól (BBJ)
7. Mælingar í markaðssmálum og upplýsingakerfi (VS)
8. Markaðssetning byggð á gögnum (VS)
Leiðbeinendur:
Valdimar Sigurðsson (VS)
Dr. Valdimar Sigurðsson er dósent í markaðsfræði við viðskiptadeild Háskólans í
Reykjavík. Sjá nánari upplýsingar um menntun og starfsferil Valdimars hér http://staff.ru.is/valdimars/CV.VS.pdf
Brynjólfur Borgar Jónsson (BBJ)
Brynjólfur er ráðgjafi hjá Capacent og sérhæfir sig í beitingu og innleiðingu hagnýtra greininga á fyrirliggjandi gögn um viðskiptavini. Brynjólfur hefur fengist við markaðsrannsóknir, tölfræðilegar greiningar og gagnanám á Íslandi og í Englandi
í fimmtán ár. Hann hefur m.a. starfað hjá stærstu fjölmiðlum landsins við rannsóknir og greiningar á sviði markaðsmála, hjá Arkenford (market modelling and research) í Englandi sem tölfræðingur á sviði markaðsrannsókna og hjá Landsbankanum við markaðsrannsóknir, gagnanám og greiningar. Brynjólfur hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent frá 2009 og sinnt ráðgjöf á sviði greininga (analytics) fyrir fjármálafyrirtæki, tryggingafélög, smásölufyrirtæki, olíufélög o.fl.
Kennslufyrirkomulag:
Staður: Námskeiðið verður haldið í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.
Stund: Námskeiðið fer fram miðvikudagana 11. og 18. apríl frá kl. 9:00-15:00.
Lengd: Námskeiðið er 2 dagar x 6 klukkustundir =12 klukkustundir.
Lagt er fyrir verkefni meðan á námskeiði stendur.
Verð: 52.000,- kr*
Nánari upplýsingar
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6358
Tölvupóstur: hrafnhildursig@hr.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður
en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

