Greining ársreikninga

Stutt og hagnýtt námskeið um greiningu ársreikninga og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja.

 

SKRÁNING HÉR

 

Námskeiðslýsing:

Fjallað verður um lykilstærðir í greiningu ársreikninga þar sem áhersla verður lögð á þau atriði sem mestu máli skipta í núverandi rekstrarumhverfi s.s. sjóðstreymi og fjárhagsstöðu. Greining ársreikninga verður svo tengd við aðferðir við mat á skuldsetningu, áhættu og arðsemi.

Á námskeiðinu verður einnig fjallað um ýmis þeirra atriða sem hafa orðið fyrirtækjum að falli þegar erfitt rekstrarumhverfi herjar á fyrirtæki og það útskýrt með tilvísun til raunverulegra fyrirtækja. Í námskeiðinu verður einnig fjallað um nokkur hugtök sem mikið hefur verið fjallað um í fjölmiðlum og varpað ljósi á hvort og hvernig þau tengjast erfiðleikum fyrirtækja.

 

Uppbygging námskeiðs:

Almennt um ársreikninga, innihald og framsetning, sjóðsstreymi

o    Námskeiðið fer yfir lög og reglur um framsetningu og innihald ársreikninga.  Ábyrgð aðila skv. lögum um ársreikninga verður gerð skil.  Samspil rekstrarreiknings, sjóðsstreymis og efnahagsreiknings verður rakið og sýnd raunveruleg dæmi. Samspil ársreikninga innan og utan samstæðuuppgjörs er sýnt ásamt skýringu á hugtakinu hlutdeildaraðferð er kemur að eignarhaldi eins félags í öðru.


Eignir og skuldir í ársreikningum, framsetning og mat

o    Framsetning og mat á eignum og skuldum er yfirfarið ásamt mati og árlegu virðismati (virðisrýrnunarprófum) á óefnislegum eignum. Færsla og útreikningur á fjármögnunarleigusamingum og tengdum skuldum, tekin fyrir.


Tekjuskattur, óefnilegar eignir, virðisrýrnunarpróf og fjárfestingareignir

o    Samspil reksturs og efnahags og sjóðsstreymis tekið fyrir og sýnt með líkanagerð hvernig þessir liðir tengjast.  Farið yfir tekjuskatt lögaðila, færslu og útreikning hans sem og framsetningu og útreikning tekjuskattsskuldbindingar.

 

Fyrir hverja?

Námskeiðið er ætlað stjórnendum fyrirtækja sem kljást við erfiðleika á þessu sviði, þeim sem starfa við bókhald og fjármál, öllum þeim sem vilja læra meira um ársreikninga fyrirtækja.

 

Markmið:

Að nemendur fái sýn á upplýsingar og samhengi þeirra upplýsinga sem felast í ársreikningnum

Að auka skilning nemenda á samhengi hluta innan allra liða ársreiknings

Að auka skilning nemenda á reikniverki sem beitt er í ársreikningum í eigna- og skuldamælingum

 

Kennslufyrirkomulag:

Námskeiðið fer fram í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi þriðjudagana 6., 13.og 20. mars 2012 kl. 9-13.

Leiðbeinandi er Kristján M. Bragason, Partner - PricewaterhouseCoopers

kristjan.m.bragason@is.pwc.com

Verð: 52.000,- kr*

 

SKRÁNING HÉR

 
Nánari upplýsingar veitir:


SoleySóley Jónssdóttir
Verkefnastjóri

Sími: 599 63 41
Tölvupóstur: soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is

 
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica