Gerð viðskiptaáætlana og uppbygging rekstrar



SKRÁÐU ÞIG HÉR

 

Námskeiðslýsing:

Á námskeiðinu er fjallað um uppsetningu fyrirtækis í tengslum við viðskiptahugmynd og nánar skoðað hverju þarf að huga að. Einnig er fjallað um innviði viðskiptaáætlana og þeir nýttir til stuðnings við að móta reksturinn. Ramminn um fyrirtækið er mótaður
og þátttakendum kennt að gera markaðsgreiningu á umhverfi rekstursins meðáherslu á markhóp og samkeppnisaðila. Þá er  sérstaklega skoðað hvernig byggja á upp raunhæfa söluáætlun og stýra fjármálum svo vel gangi.

 

Markmið námskeiðs:

Að nemendur fái innsýn í gerð viðskiptaáætlana og uppsetningu fyrirtækja í tengslum við
viðskiptahugmynd, ásamt því að þekkja hverju þarf að huga að.


Leiðbeinandi:

Þór Clausen, MSc í fjármálum. Sérsvið er nýsköpun, stofnun og rekstur fyrirtækja.

Kennslufyrirkomulag:

Staður: Námskeiðið verður haldið í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Stund: Námskeiðið verður kennt dagana 1., 3. og 8. október milli kl. 16:00 og 19:00.

Lengd: Námskeiðið er 9 klukkustundir (3x3 klst).

 

Verð: 40.000,- kr*


SKRÁÐU ÞIG HÉR



Nánari upplýsingar veitir:

Hrafnhildur Sigurðardóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6358
Tölvupóstur: hrafnhildursig@hr.is
www.opnihaskolinn.is

 

*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála















Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica