Almenn lýsing
Líkan er einfölduð birtingarmynd af raunveruleikanum. Líkön eru ætluð til að spyrða saman helstu forsendur fyrir ákvörðuninni og birta þær þannig að líkanið hjálpi við að svara hvað sé best að gera. Gerð líkansins er einnig mikilvæg til að skilja vandamálið og
viðfangsefnið. Að öllu jöfnu eru ákvörðunarlíkön gerð í töflureiknum og algengastur slíkra er Excel.
Námskeiðið fjallar um hvernig stilla má upp breytum og á þeim grunni að setja saman ákvörðunarlíkani í Excel.
Markmið
Eftir námskeiðið kann þátttakandinn að:
Greina milli breyta og gagna.
Setja upp áhrifarit.
Tengja saman breytur í þeirri viðleitni að byggja upp magnbundið líkan.
Kunna á helstu „What if“ skipanir í Excel s.s. Scenarios, Data tables og Goal seek. Einnig verður Solver sýndur o.fl. gagnlegar skipanir í Excel.
Fyrir hverja?
Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við áætlunargerð s.s. stjórnendum og verkefnastjórum og vilja kynnast öflugum verkfærum til að bæta áætlunargerð og ákvarðanir.
Nauðsynlegt er að kunna grunnatriðin í Excel.
Leiðbeinandi
Þórður Víkingur Friðgeirsson, aðstoðarprófessor við Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Fyrirkomulag
Námskeiðið fer fram í Háskólanum í Reykjavik fimmtudaginn 3. og föstudaginn 4. nóvember frá kl. 8.30-12.30.
Lengd: 8 klukkustundir
Verð: 39.500,- kr*
Nánari upplýsingar
Sóley Jónsdóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 63 41
Tölvupóstur: soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

