Framkoma og tjáning

 Kanntu að tjá þig? - Grein í Morgunblaðinu þann 16.1.2010

 

Námskeiðslýsing:

Þátttakendur eru þjálfaðir í að gera á skilmerkilegan hátt grein fyrir máli sínu, tala af öryggi fyrir framan hóp fólks, leggja áherslur á aðalatriði og auka þar með áhrifamátt sinn og útgeislun. Unnið er út frá verkefnum úr lífi og starfi þátttakenda og þeir þjálfaðir í að gera grein fyrir þeim á sannfærandi og hnitmiðaðan hátt. Með æfingu og endurgjöf leiðbeinanda er unnið markvisst að því að fá þátttakendur til að blómstra sem málssvara sinna verkefna og hópa.

Við flutning mun leiðbeinandi einnig fara yfir helstu gildrur í textasmíð og hvernig má varast þær. Ábendingar um hvernig eigi að semja hnitmiðaðan og sterkan texta. Fjallað er um notkun á glærum og síðan verða kenndar nýjar aðferðir sem nota má til að flytja textann þannig að hann verði lifandi, skemmtilegur og áhrifamikill.

 

Ávinningur:

  • Aukið öryggi og færni í framkomu
  • Betri raddbeiting, öndun og líkamsbeiting
  • Þekking á eigin ræðustíl og styrkleikum
  • Áhrifameiri og skemmtilegri framkoma
  • Minni kvíði og aukin útgeislun 

 

Kennslufyrirkomulag:

Kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík föstudagana 16. og 23. september frá kl. 9-13.

Lengd: 8 klukkustundir

Verð: 39.900.- kr*

Leiðbeinandi er María Ellingsen leikkona, leikstjóri og fjölmiðlakona.

Gera má ráð fyrir klukkutíma undirbúningsvinnu milli kennslutíma.

 

 


Nánari upplýsingar veitir:

SoleySóley Jónsdóttir
Verkefnastjóri
S: 599 6341
Netfang: soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is

*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála




Einstaklingar





Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica