Fræðslufundur styrktarfélagsins LÍF

- fundaröð um heilsu kvenna í tilefni af landssöfnun fyrir Kvennadeild Landspítalans

Á næstunni stendur Líf, styrktarfélag kvennadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss (LSH), fyrir röð hádegisfyrirlestra i Háskólanum í Reykjavík (HR), um málefni sem tengjast heilsu kvenna. Fyrsti fundurinn verður miðvikudaginn 19. janúar kl. 12.00. Fyrirlestrarnir eru liður í undirbúningi fyrir fjársöfnun Lífs fyrir kvennadeildina, sem haldin verður á landsvísu - og lýkur með glæsilegum söfnunarþætti á Stöð 2 í byrjun mars. Fundirnir eru opnir öllum almenningi sem er hvattur til að mæta og hlýða á áhugaverð erindi um heilsufar kvenna. 


2.febrúar 2011, kl. 12:00 - 13:00
Meðgöngusykursýki
Hildur Harðardóttir yfirlæknir, Orsakir, afleiðingar og meðferð meðgöngusykursýki.
Ómar Sigurvin Gunnarsson, læknakandidat. Faraldsfræði meðgöngusykursýki, farið yfir niðurstöður erlendra rannsókna og helstu niðurstöður íslenskra rannsókna (óbirt efni).
Júlía Linda Ómarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Mæðravernd og meðgöngusykursýki.
Fundarstjóri Þóra Steingrímsdóttir, fæðingarlæknir lSH og heilsugæslu höfuðborgarinnar.

Skráning
 
16.febrúar 2011, kl.12:00 - 13:00
Fæðingar á LSH
Anna Sigríður Vernharsðdóttir, ljósmóðir talar um eðlilegar fæðingar og stuðning/meðferð ljósmæðra við konur í eðlilegri fæðingu
Ragnheiður I. Bjarnadóttir, fæðingarlæknir talar um gæðavísa við fæðingar
Fundarstjóri Geir Gunnlaugsson landlæknir.

Skráning


2.mars 2011, kl.12:00 - 13:00
Uppbygging brjósta eftir brjóstakrabbamein
Kristján Skúli Ásgeirsson

Skráning

Nánari upplýsingar:

Elín Sveinsdóttir, frkvstj.söfnunarátaks Lífs

netfang: elin@sagafilm /gsm 694 1919








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica