Námskeiðslýsing:
Stuðst er við bók Carmen M. Reinhart og Kenneth S. Rogoff „This time is different (2009) Princeton University Press“ þar sem rakin er saga fjármálakreppa, greiðslufalls þjóða og gjaldeyriskreppa um langan tíma. Leitast er við að skýra hvaða þættir virðast
endurtaka sig aftur og aftur í hegðun fjármálastofnana og stjórnvalda. Hvernig stendur á því að sömu mistökin eru endurtekin sem verða þess valdandi að allt endar á sama veg. Farið er yfir helstu niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar bandaríska þingsins í kjölfar síðustu fjármálakreppu þar í landi. Rakið er efni annarra skýrslna í kjölfar kreppunnar eins og Turner skýrslunnar og fleiri skýrslna. Alþjóðlegar eftirlitsstofnanir hafa brugðist við með strangari reglum og löggjöf um rekstur fjármálastofnana og raktar eru helstu breytingar og tilgangur þeirra.
Ávinningur:
Geta greint sameiginleg einkenni fjármálakreppa um allan heim.
Öðlast dýpri innsýn í atburðarás fjármálakreppa síðustu áratuga.
Skilja og geta greint viðbrögð eftirlitsaðila um allan heim.
Kunna skil á helstu tækjum eftirlitsaðila til markvissara eftirlits.
Hafa skoðanir á hvort og þá hvernig draga megi úr líkum á fjármálakreppum.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist innsýn í sífellt flóknari heim fjármálamarkaða og betri skilning á starfsemi fjármálafyrirtækja og markaða. Markmiðið er að auka almennan skilning á eðli fjármálakreppa til að geta dregið úr líkum á endurteknum mistökum og lágmarkað skaða af sviptingum á alþjóðlegum mörkuðum.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa á fjármálamarkaði, í stjórnsýslunni sem og öllum þeim sem vilja byggja upp þekkingu á þessu sviði eða starfa og taka ákvarðanir er haft geta áhrif á efnahagslegan og fjárhagslegan stöðugleika þjóðarinnar.
Leiðbeinandi
Leiðbeinandi er Ólafur Örn Ingólfsson hagfræðingur. Ólafur Örn starfar nú sem sjálfstæður ráðgjafi en hefur áratuga reynslu af störfum á fjármálamarkaði auk þess að hafa starfað um skeið í Fjármálaeftirliti eftir hrun.
Lesefni:
Carmen M. Reinhart & Kenneth S. Rogoff (2009) Princeton University Press „This time is different: eight centuries of financial folly“.
The Financial Crisis Inquiry Report: Final Report of the National Commission on the Causes of the Financial and Economic Crisis in the United States (January 2011).
The Turner Review: A regulatory response to the global banking crisis (March 2009) FSA
Aðrar skýrslur og valdir kaflar úr ýmsum áttum.
Kennslufyrirkomulag:
Kennsla fer fram í Opna háskólanum í HR, Menntavegi 1, þriðjudaginn 20. mars og fimmtudaginn 22.mars 2012 frá kl. 13:00- 17:00 báða dagana.
Lengd: námskeiðið er samtals 8 klukkustundir.
Verð: 39.000,- kr*
Nánari upplýsingar
Sóley Jónsdóttir
verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
S. 599 6341
soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

