Opni háskólinn býður upp á 10 klst grunnnámskeið í Excel. Námskeiðið nýtist helst þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í Excel forritinu, hafa lítið unnið með það og vantar að auka grunnþekkingu sína á möguleikum þess.
Námskeiðslýsing:
Farið er í öll helstu grunnatriði í notkun Microsoft Excel.
Farið verður m.a. yfir eftirfarandi atriði:
- Yfirlit yfir valmyndirnar í Excel forritinu og átta sig á umhverfi þess
- Í hvað notaru Excel og hvaða möguleika býður það upp á fyrir almennan notanda
- Búa til nýtt skjal/nýjan flipa og vinna með það
- Útlit skjala og texta (format cells)
- Slá inn gildi í reiti og vinna með reiti, t.d. við útreikninga eins og samlagningu og meðaltal
- Hvernig við setjum inn gögn frá öðrum uppruna en Excel
- Flokkun og röðun gagna í skjali/töflu í Excel (sort and filter)
- Útbúa súlurit og gröf ásamt því að setja inn myndir
- Vinna með prentútlit og fleira í kringum útprentun
- Hvernig við felum dálka og línur án þess að gögn hverfi (group og ungroup)
- Hvernig við útbúum okkar eigin vinnustiku með aðgerðum sem við notum oftast
- Öryggi skjala, aðgangs- og breytingastjórnun
Þetta er ekki ekki tæmandi upptalning heldur einungis dæmi um hvað verður farið í.
Leiðbeinandi:
Páll Daði Ásgeirsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte.
Kennslufyrirkomulag:
Staður: Námskeiðið fer fram í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík Menntavegi 1, 101 Reykjavík.
Stund: Námskeiðið verður kennt á mánudögum og miðvikudögum dagana 4., 6., 11. og 13. júní. Sjá tímasetningar hér að neðan;
Mánudaginn 4. júní kl. 17:00 - 19:30
Miðvikudaginn 6. júní kl. 16:30 - 19:00
Mánudaginn 11. júní kl. 16:30 - 19:00
Miðvikudaginn 13. júní kl. 16:30 - 19:00
Námskeiðið er í heildina 10 klst og er 4 skipti (4*2,5 klst.).
Kennsla fer fram í tölvustofu.
Kennsla fer fram á Excel 2010.
Verð: 38.000,- kr.
* Ath takmarkaður þátttakendafjöldi.
Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6358
Tölvupóstur: hrafnhildursig@hr.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

