Vörumerkjastjórnun

VÖRUMERKJASTJÓRNUN

Námskeiðslýsing

Vörumerkjastjórnun (e. branding) er einn af þeim þáttum innan markaðsfræða sem vex hvað hraðast.  Fræðisviðið er ungt og lifandi og ekki eru allir endilega á eitt sáttir um hvað aðferðir séu vænlegastar til að byggja upp gott vörumerki .  Í námskeiðinu verða nemendum kennd grundvallar atriði vörumerkjastjórnunar sem og verða þeim kynnt nýjustu áherslur á fræðisviðinu. 

 

Hæfniviðmið

Að nemendur:

·         Öðlist haldgóða þekkingu á vörumerkjum og fræðisviðinu sem þau byggja á

·         Læri aðferðir við uppbyggingu vörumerkja

·         Kynnist aðferðum til að meta viðri vörumerkja

·         Þekki verklag við greiningu vörumerkja (brand audit) og hvernig vörumerki eru persónugerð (Brand personality)

 

Námsmat

Hópverkefni 30%

Lokapróf 70%

 

Kennsluaðferðir

Fyrirlestrar, verkefnavinna og lestur fræðigreina og kynning nemenda á þeim fræðigreinum sem lagðar verða fyrir.

 

Lesefni

The 22 Immutable Laws of Branding

Fræðigreinar

 

Kennarar

Friðrik Larsen, lektor við viðskiptadeild HR

Árni Árnason, vörumerkjastjóri hjá Vífilfelli, stundakennari við viðskiptadeild HR

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt á haustönn 2010.
Námskeiðið hefst 10. nóvember.
Kennt er á miðvikudögum kl.17:00 - 20:00 og laugardögum kl.9:00 - 13:00.
Námskeiðinu lýkur 15. desember.

 

Verð kr. 77.000,-

 

SÆKJA UM HÉR

 

* Umsóknarfrestur til 15. ágúst 2010

 

Þátttökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Þetta námskeið gefur ekki ECTS einingar en er ígildi 6 ECTS eininga. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af hinum fimm akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353

Efnisvalmynd

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica