Námskeiðslýsing
Kennt verður á þrjú algeng og hagnýt forrit frá Microsoft.
- MSProject – nemandinn lærir að gera verkáætlanir og kostnaðarútreikninga fyrir verkefni.
- Excel – nemandinn lærir að framkvæma útreikninga, skrifa föll, að nota pivot töflur o.fl.
- Access – nemandinn lærir á einfaldan töflugagnagrunn, skrifa fyrirspurnir og byggja upp gagnasöfn.
Hæfniviðmið
Að nemandinn öðlist færni í þremur helstu forritum sem stjórnendur nota.
Námsmat
Verkefni 75%
Lokaverkefni 20%
Þátttökueinkunn 5%
Kennsluaðferðir
Hljóðfyrirlestrar í formi sýnikennslu, verkefnavinna og umræðuþræðir.
Lesefni
Excel handbók viðskiptamannsins.
Verkefnastjórnun.
Kennari
Eðvald Möller, MScE, MBA. Aðjúnkt við viðskiptaskor Háskóla Íslands.
Dagsetningar
Námskeiðið verður kennt í fjarnámi á haustönn 2012.
Námskeiðið hefst 20. október.
Námskeiðinu lýkur í desember.
Verð kr. 81.000,-
* Umsóknarfrestur er til 6. október 2012.
Inntökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun og haldbær reynsla af vinnumarkaði. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Lágmarksaldur nemenda eru 25 ár.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókn:
- Staðfest afrit prófskríteina verða að fylgja umsókn svo að hún sé tekin gild.
- Meðmælabréf (kostur en ekki skylda).
- Á rafrænu umsóknareyðublaði þarf jafnframt að tilgreina hvers vegna umsækjandi óskar eftir inngöngu.
Fylgigögnum umsókna er hægt að skila rafrænt með umsókn eða beint til verkefnastjóra námsins.
Mat námskeiðs til eininga
Þetta námskeið samsvarar 6 ECTS einingum í vinnuframlagi en veitir þó ekki ígildi ECTS. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma.
Forföll og innheimta
FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar
Kamilla Reynisdóttir
Verkefnafulltrúi hjá Opna háskólanum
kamillar@ru.is
Sími: 599 6398

