Umferðatækni og umferðaskipulag

Opni háskólinn í samstarfi við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík


Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík og tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík bjóða uppá námskeið á meistararstigi sem henta vel þeim sem vilja safna einingum í meistaragráðu.

Opni háskólinn sér um innritun nemenda í stök námskeið á meistarastigi en tækni- og verkfræðideild sér um faglega stjórnun námskeiðanna. Umsækjendur þurfa að skila inn prófskírteinum þegar sótt er um námskeið. Nemendur sem innritast í námskeiðið í gegnum Opna háskólann sitja sömu námskeið og þeir nemendur sem eru skráðir í meistaranám í tækni- og verkfræðideild HR og þurfa því að uppfylla sömu inngönguskilyrði.

Umsækjendur hafa val um að sitja námskeiðið án eininga og taka þá ekki þátt í verkefnavinnu og þreyta próf. Þeir nemendur sem fullnægja kröfum um námsmat fá einingar metnar.

Námskeiðslýsing

Námskeiðið skiptist nokkuð jafnt í umferðarskipulag, umferðartækni og umferðarmannvirki. Í fyrsta hlutanum er m.a. fjallað um fjögurra þrepa spálíkön, skipulagstölur, dreifingu umferðar, ÁDU, fyrirkomulag gatnakerfis innan hverfa, 30 km hverfi, flokkun gatnakerfis, temprun ökuhraða, þarfir mismunandi vegfarendahópa, áhrif þétt- og dreifbýlis, tafatíma, akstursvegalengdir og arðsemisútreikninga. Í öðrum hlutanum er m.a. fjallað um umferðarrýmd götukafla, fléttana og gatnamóta, þjónustustig, PHF, stillingu umferðarljósa, gerðir hringtorga, hermun umferðar, biðraðir og merkingar. Í þriðja hlutanum er m.a. fjallað um gerðir mislægra gatnamóta, 2+1 vegi, hönnunarferli, hönnun hringtorga, þveranir óvarinna vegfarenda sem og reynslu og framtíðarsýn hérlendis af flóknari umferðarmannvirkjum.


Hæfniviðmið

Stefnt er að því að nemendur:

·       Tileinki sér hefðbundnar aðferðir við umferðarskipulag.

·       Tileinki sér hefðbundnar aðferðir við umferðartækni.

·       Læri að láta tæknilegar og skipulagslegar aðferðir vinna saman við lausn umferðarvanda.

·       Kunni á því skil, hvaða forrit eru notuð í tengslum við umferðarmál og á hverju þau byggja.

·       Geti valið algengustu form umferðarmannvirkja miðað við aðstæður.


Námsmat

Mat á verkefnum og munnlegt próf.


Kennsluaðferðir

Fyrirlestrar og verkefnatímar. 

Námskeiðið er kennt á ensku nema allir skráðir nemendur séu íslenskumælandi.


Lesefni         

Transport Planning and Traffic Engineering eftir O‘Flaherty.


Kennarar

Haraldur Sigþórsson, lektor.


Dagsetningar

Kennt í 10 vikur. Kennsla hefst 24.ágúst og lýkur 4.nóvember.

Námskeiðið er á dagskrá þriðjudaga kl. 13:10-16:30 og fimmtudaga kl.13:10-15:10 (ekki kennt 31.ágúst).


Verð

Verð kr. 174.000 kr.-

*Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2010

 

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði er bakkalár-próf í verkfræði, tæknifræði eða öðrum fagsviðum, s.s. arkitektúr, byggingafræði, landfræði eða umhverfisfræði.

 

Nánari upplýsingar og skráning

Bryndís Bjarnadóttir
Þjónustufulltrúi hjá Opna háskólanum
bryndisb@ru.is

  599-63 87








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica