Opni háskólinn í samstarfi við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík
Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík og tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík bjóða uppá námskeið á meistararstigi sem henta vel þeim sem vilja safna einingum í meistaragráðu.
Opni háskólinn sér um innritun nemenda í stök námskeið á meistarastigi en tækni- og verkfræðideild sér um faglega stjórnun námskeiðanna. Umsækjendur þurfa að skila inn prófskírteinum þegar sótt er um námskeið. Nemendur sem innritast í námskeiðið í gegnum Opna háskólann sitja sömu námskeið og þeir nemendur sem eru skráðir í meistaranám í tækni- og verkfræðideild HR og þurfa því að uppfylla sömu inngönguskilyrði.
Umsækjendur hafa val um að sitja námskeiðið án eininga og taka þá ekki þátt í verkefnavinnu og þreyta próf. Þeir nemendur sem fullnægja kröfum um námsmat fá einingar metnar.
Námskeiðslýsing
Helstu kenningar í skipulagsfræðum um samfélagsmótun, form byggðar og ferli skipulagsgerðar. Stjórnkerfi skipulagsmála, s.s. tegundir skipulagsáætlana, ábyrgð og forræði skipulagsmála og skipulagsferli. Viðfangsefni og aðferðir við greiningu og mótun skipulagsákvarðana. Samspil landnotkunar- og umferðarskipulags.
Hæfniviðmið
Stefnt er að því að nemendur:
· Þekki til helstu strauma og stefna í skipulagsfræðum.
· Þekki uppbyggingu skipulagskerfisins, s.s. helstu tegundir skipulagsáætlana, skipulagsyfirvöld og skipulagsferli.
· Þekki til inntaks, eðlis og helstu viðfangsefna skipulagsgerðar og tileinki sér grunnþekkingu í greiningu viðfangsefna
og vinnslu skipulagsstillinga.
· Þekki til umræðu, álitamála og ólíkra leiða við samþættingu landnotkunarskipulags og samgönguskipulags.
Námsmat
Skriflegt próf auk verkefna.
Kennsluaðferðir
Fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna og vinnustofa.
Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku.
Lesefni
Tilkynnt síðar.
Kennarar
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt.
Salvör Jónsdóttir, stundakennari.
Tim Richardsson, gestaprófessor.
Dagsetningar
Kennt í 14 vikur. Kennsla hefst 24.ágúst og lýkur 23.nóvember.
Námskeiðið er á dagskrá þriðjudaga kl.10:20-12:45 og fimmtudaga kl.11:10-12:45.
Frávik frá því eru að kennt er allan daginn þriðjudaginn 31. ágúst og þriðjudaginn 23. nóvember og falla fimmtudagstímar niður í þeim vikum.
Verð
Verð kr. 174.000 kr.-
*Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2010
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði er bakkalár-próf í verkfræði, tæknifræði eða öðrum fagsviðum, s.s. arkitektúr, byggingafræði, landfræði eða umhverfisfræði.
Nánari upplýsingar og skráning
Bryndís Bjarnadóttir
Þjónustufulltrúi hjá Opna háskólanum
bryndisb@ru.is 599-6387begin_of_the_skype_highlightingend_of_the_skype_highlighting

